Enski boltinn

Scholes og Butt þjálfa saman hjá Man. Utd

Butt og Scholes er þeir voru báðir enn að spila.
Butt og Scholes er þeir voru báðir enn að spila.
Paul Scholes, goðsögn hjá Man. Utd, er kominn aftur til félagsins en hann lagði skóna á hilluna í sumar. Hann lék yfir 700 leiki fyrir félagið og skoraði 155 mörk.

Honum var boðið að vinna fyrir félagið eftir að hann hætti og hann er byrjaður á því. Scholes er orðinn aðstoðarmaður gamals félaga, Nicky Butt, sem þjálfar unglingalið félagsins.

Scholes er þó ekki farinn á fullt í starfinu heldur situr einstaka sinnum á bekknum með Butt en þeir léku lengi saman á miðjunni hjá Man. Utd á ´sinum tíma.

Scholes vildi taka sér nokkuð gott frí áður en hann færi að vinna fyrir félagið. Hann ætlar að koma sér inn í starfið í rólegheitum en ekki fara á fullt strax.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×