Safnaði 190 þúsund krónum fyrir börn í bata eftir krabbamein Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 3. október 2013 18:52 Thelma Líf hefur safnað 190 þúsund krónum. mynd/Gauti Þór Grétarsson
15 ára stúlka á Akureyri, Thelma Líf Gautadóttir styrkti verkefnið Eftirfylgni út í lífið, sem er verkefni hjá Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna um 190 þúsund krónur í vikunni. Thelma Líf segir að henni hafi dottið í hug að snoða á sér á hárið og gera eitthvað gott með það í leiðinni. Fyrst ætlaði hún að gefa hárið á sér til hárkollugerðar en eftir að hafa hringt á nokkra staði til að kanna með það komst hún að því að hárið hennar yrði ólíklega notað í hárkollu. Líklegra yrði að það yrði notað til þess að þurrka upp olíu eftir olíuslys í sjónum. „Þá ákvað ég frekar að eiga hárið og búa til síðu þar sem ég safnaði pening fyrir styrktarfélagið,“ segir Thelma Líf. „Pabbi minn hringdi í félagið og spurði hvort það væru einhver verkefni sem ég gæti styrkt og mér var bent á nokkur og eftir að ég kynnti mér þetta verkefni, valdi ég það.“ „Mér fannst bara sniðugt að styrkja þá sem lifa af, mér fannst það góð hugmynd að hjálpa þeim,“ segir hún. Að Thelmu Lífar sögn er mun þægilegra að vera snoðuð en með sítt hár og hún kann breytingunni vel. Ef meiri peningur kemur inn vegna söfnunarinnar segist hún að sjálfsögðu munu láta það renna til verkefnisins.Hér er linkur á söfnunarsíðuna.Verkefnið Eftirfylgni út í lífiðVerkefnið Eftirfylgni út í lífið er að hefjast hjá styrktarfélaginu um þessar mundir. „Þetta er eðlilegt framhald af því sem við höfum verið að gera, fókusinn hefur verið á meðferð barnanna. En núna erum við að fylgja krökkunum út fyrir spítalann og út í það umhverfi sem tekur við þegar meðferð lýkur,“ segir Gréta Ingþórsdóttir, framkvæmdarstjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Að sögn Grétu á þjónustan að vera einstaklingsmiðuð. Börnin geta oft verið orkulítil og einbeitingalaus í kjölfar veikindanna og meðferðarinnar. Enda eiga þau oft erfiða lyfjameðferð að baki. Verkefnið felst í því að iðjuþjálfi tekur út aðstæður skjólstæðinga félagsins í skólum, bæði sem snúa að samskiptum annars vegar og aðstæðum og aðbúnaði hins vegar. Markmiðið er að fylgja hverju barni náið eftir og koma til móts við þarfir þess á hverjum stað og hverjum tíma. „Það þarf oft ekki nema lítið til að börnum líði mikið betur.“ Árlega greinast 10 til 12 börn með krabbamein á Íslandi. Flest þeirra lifa af, en þurfa að gangast undir erfiðar meðferðir, lyfjagjafir, geisla og skurðaðgerðir. Þessu geta fylgt síðbúnar afleiðingar. Gréta er ánægð með framtak Thelmu Lífar. „Það er náttúrulega frábært að svona ung manneskja skuli hugsa til okkar með þessum hætti og gera það sem hún gerði, það er ótrúlega aðdáunarvert,“ segir Gréta.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira