„Með ólíkindum“ að Íbúðalánasjóður sleppi við bankaskatt Þorgils Jónsson skrifar 3. október 2013 08:00 Samtök fjármálafyrirtækja eru ósátt við að fjársýsluskattur sé ekki afnuminn í ljósi hærri bankaskatts. Þá sé "með ólíkindum“ að Íbúðalánasjóður, sem er í samkeppni við önnur fjármálafyrirtæki, sé undanþeginn bankaskatti. Fréttablaðið/Samsett mynd
Samtök fjármálafyrirtækja lýsa yfir vonbrigðum með að stjórnvöld skuli ætla að sækja tekjuauka í gegnum hækkun bankaskatts úr 0,041% í 0,145% án þess að afnema fjársýsluskatt. SFF segir að fjársýsluskatturinn leggist aðeins á eina atvinnugrein og „sendi röng skilaboð“. Þá gagnrýna samtökin að Íbúðalánasjóður sé undanþeginn bankaskattinum. „Í ljósi þess að hækka á skatthlutfallið nánast fjórfalt er með ólíkindum að einn aðili í beinni samkeppni við þau fjármálafyrirtæki sem skatturinn lendir á eigi að vera undanþeginn,“ segir í tilkynningu. Samkvæmt útreikningum SFF munu aðildarfélög samtakanna greiða um 27 milljarða króna í skatta og gjöld árið 2014. Það sé fimm milljörðum meira en aðildarfélögin borguðu árið 2007, þegar bankakerfið var átta sinnum stærra en landsframleiðsla, en í dag er kerfið tvöfalt stærra en landsframleiðsla. Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri SFF, segir að þetta stingi verulega í augu og Alþingi hljóti að skoða þessi mál þegar fjárlagafrumvarpið kemur þar til umræðu. „Þessir skattar og gjöld sem fjármálafyrirtæki í dag eru að greiða eru orðin verulega mikil og íþyngjandi og við höfum rætt við stjórnvöld um að þau fari nú að sveigja til baka frá þessum álögum, og þá ekki síst ótekjutengdum sköttum og gjöldum sem íþyngja greininni mjög.“ Að sögn Guðjóns eru fjármálafyrirtækin hér á landi í harðri samkeppni bæði á innanlandsmarkaði, meðal annars við ríkið, sem og erlenda aðila. Það skipti máli að tryggja að umhverfið sé þannig að fjármálafyrirtækin séu samkeppnishæf.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Heitir því að treysta, virða og vinna með niðurstöðu þjóðarinnar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Sjá meira