Enski boltinn

Baines vildi fara til Man. Utd

Baines fékk ekki draum sinn uppfylltan.
Baines fékk ekki draum sinn uppfylltan.
Man. Utd var á eftir bæði Marouane Fellaini og Leighton Baines áður en félagaskiptaglugginn lokaði. United fékk þó aðeins Fellaini en hann kom til félagsins á elleftu stundu.

Baines hefur verið orðaður við Man. Utd í mörg ár. Alan Stubbs, þjálfari hjá Everton, viðurkennir að Baines hafi viljað fara til.

"Kvöldið sem glugginn lokaði var staðan þannig að enginn væri að fara frá okkur. Það kom reyndar aldrei til greina af hálfu félagsins að selja Baines. Hann hafði engu að síður sagt okkur að hann vildi fara til United," sagði Stubbs.

Baines er í miklum metum hjá stuðningsmönnum Everton og þeir glöddust mjög er í ljós kom að hann færi hvergi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×