Grensásdeild – brú út í lífið Þorgerður Valdimarsdóttir skrifar 1. júní 2013 07:00 Grensásdeild fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar mundir. Eins og mörgum er kunnugt fer þar fram endurhæfing þeirra sem glíma við margvíslegar afleiðingar slysa eða langvinnra sjúkdóma, s.s. heila- og mænuskaða, afleiðingar heilaáfalla og miklu fleira. Við þessar aðstæður eru fyrir hendi ýmis úrræði í samfélaginu. Lög um almannatryggingar, félagsþjónustu sveitarfélaga og félagslega aðstoð eiga að tryggja að allir njóti lágmarksframfærslu þrátt fyrir að vera óvinnufærir vegna veikinda eða slysa. Alvarleg og langvinn veikindi, sem í sumum tilfellum leiða til fötlunar, hafa óhjákvæmilega mikil áhrif á líf þess sem fyrir þeim verður. Fjölskylda hins veika verður einnig fyrir áfalli. Í sumum tilfellum þarf fólk að hætta að vinna eða skipta alveg um starfsvettvang. Margir þurfa að huga að breytingum á húsnæði eða flytja í annað húsnæði sem hentar betur. Í stöku tilfellum þarf fólk jafnvel að taka sig upp og flytja utan af landi til þess að geta betur tekist á við aðstæður sínar. Síðast en ekki síst þarf fólk að aðlagast nýjum aðstæðum og breyttum hlutverkum innan fjölskyldunnar. Eftir útskrift af Grensásdeild þarf fólk því að aðlagast breyttum kringumstæðum og reiða sig á þjónustu ýmissa aðila, s.s. heilsugæslu, félagsþjónustunnar og fleiri aðila, t.d. Öryrkjabandalagsins og Sjálfsbjargar, svo fátt eitt sé nefnt. Það er ákaflega mikilvægt að aðilar sem koma að málum einstaklinga í endurhæfingu vinni saman með heildarsýn að leiðarljósi þar sem hagsmunir sjúklingsins og fjölskyldu hans eru í fyrirrúmi. Þannig næst best markmið endurhæfingar um að fólk nái sem bestri heilsu og færni í kjölfar slysa eða sjúkdóma og fái færi á að vera virkir þjóðfélagsþegnar sér og öðrum til gæfu og hagsbóta. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Samt kýs ég Katrínu Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Mýtan um launin Elsa Nore Skoðun Forysta til framtíðar Hópur presta Skoðun Katrín Jakobsdóttir forseti Viðar Pálsson Skoðun Vekjum risann Guðmundur Karl Brynjarsson Skoðun Kveikur brennur út Þorsteinn Sæmundsson Skoðun Hagfræðin á Heimildinni Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Átt þú rétt á sumarbústað? Unnur Hrefna Jóhannsdóttir Skoðun Að mæðra barn í hjarta sínu Hólmfríður Anna Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Góður forseti G. Pétur Matthíasson skrifar Skoðun Hvers vegna Halla Tómasdóttir? Guðjón Sigurðsson skrifar Skoðun Heimildin sem hvarf úr frumvarpi matvælaráðherra Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Sníða sér stakk eftir vexti Guðni Magnús Ingvason skrifar Skoðun Norskir herrar eða íslenskir? Þóra Bergný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju ertu að bjóða þig fram? Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir skrifar Skoðun Hagfræðin á Heimildinni Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hreinleikaþráin Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Heimilisleysi blasir við öryrkjum Svanberg Hreinsson skrifar Skoðun Hvað getur Ísland gefið öðrum þjóðum? Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Veðrið, veskið og Íslendingurinn María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Að mæðra barn í hjarta sínu Hólmfríður Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Jákvæður orðaforði eykur hamingju og vellíðan Helga Fjóla Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Öll með? – 4.020 kr. hækkun fyrir skatt eftir 16 mánuði! Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Látum hjartað ráða för Sigrún Traustadóttir skrifar Skoðun Vekjum risann Guðmundur Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Katrín Jakobsdóttir forseti Viðar Pálsson skrifar Skoðun Þjóðarsátt líka fyrir fatlað fólk Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Í ker eða kistu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar Skoðun Gummi Kalli, einlægur, skemmtilegur og frábær leiðtogi Arnar Ragnarsson skrifar Skoðun Ræstingafyrirtæki og starfsmannaleigur í jafnréttisparadísinni Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Forysta til framtíðar Hópur presta skrifar Skoðun Fyrir hverja eru skoðanakannanir? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Án varna, ekkert frelsi Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Mýtan um launin Elsa Nore skrifar Skoðun Samt kýs ég Katrínu Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Viltu vera memm? Birna Dröfn Birgisdóttir skrifar Skoðun Tíminn að renna út Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Sjá meira
Grensásdeild fagnar 40 ára afmæli sínu um þessar mundir. Eins og mörgum er kunnugt fer þar fram endurhæfing þeirra sem glíma við margvíslegar afleiðingar slysa eða langvinnra sjúkdóma, s.s. heila- og mænuskaða, afleiðingar heilaáfalla og miklu fleira. Við þessar aðstæður eru fyrir hendi ýmis úrræði í samfélaginu. Lög um almannatryggingar, félagsþjónustu sveitarfélaga og félagslega aðstoð eiga að tryggja að allir njóti lágmarksframfærslu þrátt fyrir að vera óvinnufærir vegna veikinda eða slysa. Alvarleg og langvinn veikindi, sem í sumum tilfellum leiða til fötlunar, hafa óhjákvæmilega mikil áhrif á líf þess sem fyrir þeim verður. Fjölskylda hins veika verður einnig fyrir áfalli. Í sumum tilfellum þarf fólk að hætta að vinna eða skipta alveg um starfsvettvang. Margir þurfa að huga að breytingum á húsnæði eða flytja í annað húsnæði sem hentar betur. Í stöku tilfellum þarf fólk jafnvel að taka sig upp og flytja utan af landi til þess að geta betur tekist á við aðstæður sínar. Síðast en ekki síst þarf fólk að aðlagast nýjum aðstæðum og breyttum hlutverkum innan fjölskyldunnar. Eftir útskrift af Grensásdeild þarf fólk því að aðlagast breyttum kringumstæðum og reiða sig á þjónustu ýmissa aðila, s.s. heilsugæslu, félagsþjónustunnar og fleiri aðila, t.d. Öryrkjabandalagsins og Sjálfsbjargar, svo fátt eitt sé nefnt. Það er ákaflega mikilvægt að aðilar sem koma að málum einstaklinga í endurhæfingu vinni saman með heildarsýn að leiðarljósi þar sem hagsmunir sjúklingsins og fjölskyldu hans eru í fyrirrúmi. Þannig næst best markmið endurhæfingar um að fólk nái sem bestri heilsu og færni í kjölfar slysa eða sjúkdóma og fái færi á að vera virkir þjóðfélagsþegnar sér og öðrum til gæfu og hagsbóta.
Skoðun Við styðjum Guðmund Karl! Katrín Valdís Hjartardóttir,Andrea Bóel Bæringsdóttir,Guðbjörg Harpa Ingimundardóttir skrifar
Skoðun Gummi Kalli er rétti kosturinn sem biskup Íslands Áslaug Helga Hálfdánardóttir,Dís Gylfadóttir,Guðni Már Harðarson skrifar