Fyrstur Íslendinga upp norðurhlið Everest 16. maí 2013 07:00 Everest í bakgrunni „
Mér finnst frábært að Leifur sé að prófa þessa leið. Ástæður þess að ég valdi suðausturleiðina á sínum tíma eru þær að ég hef alltaf haft áhuga á menningu Nepals, á sjerpum, og svo fannst mér sú leið hreinlega meira heillandi. Norðurhliðin er meiri háslétta, flatari og hrjóstrug. Á suðausturleiðinni eru djúpir dalir og meira ísklifur, en þar er ég á heimavelli,“ segir Haraldur Örn Ólafsson, en í dag eru ellefu ár liðin síðan hann stóð á tindi hæsta fjalls heims, Everest. Hann bætir við að suðausturleiðin sé þess eðlis að auðveldara sé að fá aðstoð, komi eitthvað upp á. Þeir Íslendingar sem hafa hingað til klifið Everest hafa allir farið suðausturleiðina frá Nepal, þá leið sem Ingólfur Gissurarson kemur til með að klífa. Norðurhliðin er almennt fáfarnari, en þá er farið frá Tíbet. Kínverskur leiðangur náði fyrst á toppinn eftir norðurhliðinni árið 1960 en síðan var leiðin lokuð fram til 1980. Leifur Örn Svavarsson stefnir á að verða fyrstur Íslendinga til að klífa norðurhliðina. Leifur stefnir á að komast á toppinn á bilinu 19. til 29. maí. Hann hefur klárað aðlögunarferlið og bíður eftir veðurglugga til að takast á við toppinn. Nú hvílir hann sig og gefur líkamanum tækifæri til að jafna sig fyrir lokahnykk ferðarinnar – að komast á toppinn. Ingólfur sagði í samtali við Í bítið á Bylgjunni að hann hefði klárað aðlögunarferlið fyrir viku. Þá voru farnar tvær ferðir upp í fjallið og yfir ísfallið, skriðjökul og hæsta dal í heimi. Áætlað er að hann komist á toppinn eftir rúma viku, 21. eða 22. maí. Hann var í gær staddur í grunnbúðunum, sem eru í 5.400 metra hæð. Aðspurður sagðist Ingólfur ætla að reyna að staldra við á toppnum í um það bil hálftíma, þó að það færi eftir umferð, sem getur orðið töluverð á toppinn. Nú eru um 250 fjallagarpar frá öllum heimshornum skráðir í göngu eftir suðausturleiðinni. Talsvert færri eru skráðir í göngu upp norðurhliðinni. Fjallið Everest er 8.848 metra hátt yfir sjávarmáli og er nyrsti tindur í Himalajafjöllunum, á landamærum Nepal og Tíbet. Norðurhliðin og suðausturleiðin eru helstu leiðirnar upp á fjallið þótt vitað sé til þess að menn hafi farið aðrar leiðir.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira