Fermingargjöfin kastaði merfolaldi Sara McMahon skrifar 18. apríl 2013 09:00 Urður Einarsdóttir fékk hryssu í fermingargjöf í fyrra. Öllum að óvörum kastaði merin í síðustu viku. Faðir hennar, Einar Örn Sigurdórsson, segir fjölskylduna ánægða með þennan óvænta glaðning.Fréttablaðið/pjetur „
Við fengum merina afhenta í júníbyrjun og þá grunaði engan að hún gæti verið fylfull. Öllum að óvörum kastaði hryssan svo litlu merfolaldi í síðustu viku,“ segir Einar Örn Sigurdórsson, starfsmaður hjá Íslensku auglýsingastofunni, um skemmtilegan atburð sem átti sér stað í síðustu viku. Þá varð Urður Einarsdóttir, dóttir hans og Brynhildar Davíðsdóttur, óvænt einni merinni ríkari þegar hryssa sem hún hafði fengið í fermingargjöf kastaði litlu merfolaldi. Einar Örn segir að merin Sýn muni sinna móðurhlutverkinu í sumar og því verði lítið um útreiðartúra hjá dóttur hans. Folaldið er talið undan Gerpi frá Stóra-Sandfelli, en sá var með Sýn í geymslu síðasta sumar. „Pabbinn er úrvalsgæðingur, að mér skilst, sem búið er að selja út. Við fengum þarna topphest í kaupbæti,“ segir hann og hlær. Urður, eigandi Sýnar, segir fréttirnar af folaldinu hafa komið sér skemmtilega á óvart. Hún heimsótti mæðgurnar um síðustu helgi og segir folaldið afskaplega krúttlegt, en það mun vera skjótt að lit, líkt og móðir þess, og braggast vel í sveitinni. „Það er lítið og mjúkt og algjör dúlla. Það er dálítið feimið og ekki jafn gæft og mamman,“ segir Urður sem mun dvelja sumarlangt hjá afa sínum og ömmu á bænum Arnbjargarlæk í Þverárhlíð. Spurð hvort hún hafi þegar ákveðið nafn á folaldið segir Urður að nokkur komi til greina. „Ég hef verið að pæla í nafninu Þula, mér fannst það svo fallegt. Svo kemur nafnið Frostrós líka til greina því hún fæddist í sjö stiga frosti, sem er ekki æskilegt fyrir lítið folald,” segir Urður að lokum.Alveg grunlaus um ástand hryssunnar Davíð Aðalsteinsson, bóndi á Arnbjargarlæk og móðurafi Urðar, varð fyrstur var við folaldið. „Merin hafði verið á húsi hjá okkur í vetur en úti frá því fyrir páska. Dag einn er mér litið út um gluggann og sé þá að henni fylgir folald. Ég ályktaði strax að hún hlyti að eiga folaldið enda er hún ein á túninu,“ segir Davíð. Hann viðurkennir að atburðurinn hafi komið honum í opna skjöldu, enda hafi hann verið grunlaus um ástand hryssunnar. „Það vissi enginn af því að merin hafði komist í fjörið í Reykjavík. Við erum þó öll mjög kát með þetta og þá sérstaklega fermingarbarnið sjálft.“
Mest lesið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Lífið Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Lífið Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Lífið samstarf Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Fleiri fréttir Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Sjá meira