Flestir vilja klára aðildarviðræðurnar Höskuldur Kári Schram skrifar 18. apríl 2013 18:30
Ríflega helmingur þjóðarinnar vill að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði kláraðar og samningurinn settur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þriðjungur landsmanna vill hins vegar draga umsóknina til baka. Þetta kemur fram í könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins sem var gerð dagana 15. til 16. apríl. Spurt var: Hvernig vilt þú að framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið verði háttað? Af þeim sem tóku afstöðu vildu 34 prósent draga umsóknina til baka. 55 prósent vildu klára viðræðurnar og leggja samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu. 11 prósent vildu gera hlé á viðræðum og og hefja þær ekki aftur nema með samþykki þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Kjósendur Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks eru klofnir þegar kemur að afstöðu til Evrópusambandsins. 48 prósent kjósenda Framsóknarflokks vilja draga umsóknina til baka en 40 prósent klára viðræðurnar - 12 prósent vilja gera hlé. Hjá Sjálfstæðisflokknum er hlutfallið svipað. 46 prósent vilja draga umsóknina til baka, 38 prósent vilja klára viðræður en 16 prósent gera hlé. Yfirgnæfandi meirhluti kjósenda Samfylkingarinnar vill hins vegar klára viðræðurnar - eða 92 prósent. það sama vilja 87 prósent kjósenda Bjartrar framtíðar - 72 prósent kjósenda Vinstri grænna og 58 prósent kjósenda Pírata. Karlar eru almennt hlynntari því að klára aðildarviðræðurnar en konur. Í öllum kjördæmum, nema Norðvesturkjördæmi, vildu flestir kjósendur klára aðildarviðræður og leggja samninginn í dóm þjóðarinnar.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira