Innlent

Játaði heimilisofbeldi en var samt sýknaður

Valur Grettisson skrifar
Héraðsdómur Suðurlands. Maðurinn var sýknaður í vikunni.
Héraðsdómur Suðurlands. Maðurinn var sýknaður í vikunni. Fréttablaðið/ÓKÁ
„Maður deilir náttúrulega ekki við dómarann en mér finnst þessi niðurstaða vond,“ segir Grímur Hergeirsson, réttargæslumaður konu sem kærði manninn sinn fyrir heimilisofbeldi.

Eiginmaðurinn var ákærður fyrir að hafa slegið konuna ítrekað í hendur og hrint henni á eldhúsinnréttingu þannig að hún hlaut áverka af. Maðurinn var sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands í vikunni vegna þess að konan minntist ekki á það við skýrslutöku hjá lögreglu að hann hefði tekið hana hálstaki á meðan meint árás átti sér stað.

Dómarinn mat þar af leiðandi sem svo að framburður konunnar hefði ekki verið nægilega stöðugur, einnig vegna þess að hún lýsti ekki nægilega vel hvernig hann veitti henni áverkana.

Grímur Hergeirsson
Það var í apríl á síðasta ári sem maðurinn kom heim til sín að næturlagi. Hann var mjög drukkinn og hafði neytt verkjalyfja. Í framburði mannsins segir að þau hafi rifist og játaði maðurinn að hafa gripið oft þéttingsfast um fram- eða upphandlegg konunnar til að leggja áherslu á orð sín í rifrildi þeirra á milli, líklega í 15 til 20 skipti. Þá sagði hann í yfirheyrslu lögreglunnar: „Ég var dauðadrukkinn og lét illa, sló að ég hélt eða greip mjög fast í framhandlegg hennar en ekki upphandlegg…“. Maðurinn neitaði hins vegar að hafa ýtt konunni.

Atvikið stóð yfir í tvo tíma og að lokum flúði konan út af heimilinu til sonar síns. Fyrir dómi sagði konan að maðurinn hefði áður beitt hana heimilisofbeldi, þá ódrukkinn. Maðurinn var úrskurðaður í nálgunarbann eftir atvikið.

„Það sem er einkennilegt við rökstuðning dómarans er að konan er fundin sek um misræmi varðandi atriði sem engu máli skiptir,“ segir Grímur og bendir á að maðurinn hafi til að mynda ekki verið ákærður fyrir að taka hana hálstaki.

„Skýrsla var tekin fyrir einu og hálfu ári þegar atvikið var nýskeð og konan í miklu uppnámi, enda erfitt mál,“ segir Grímur. „Og svo kemur hún fyrir dóm þar sem hún er þráspurð um smáatriðin. Dómarinn gerir allt of mikið úr þessu misræmi á smáatriðum og mér finnst að það eigi ekki að leiða til sýknu,“ segir Grímur. Honum finnst verst að konan upplifi að hún hafi klúðrað málinu. „Hún situr uppi með þá sök að hún hafi ekki staðið sig nægilega vel fyrir dómi,“ segir Grímur.

Hér má lesa dóminn í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×