"Frábært að hitta hana“ – Bjargaði lífi stúlkunnar Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 12. október 2013 18:13 Hér má sjá Viðar og Tushu ræða saman. mynd/Skjáskot úr myndbandi „
Það var alveg frábært að hitta hana, það er ekki oft sem að maður fær tækifæri í svona starfi til að hitta þá sem maður bjargar, að hitta þá sem hafa slasast svona illa en ná samt að lifa það af,“ segir Viðar Magnússon, íslenskur læknir, sem hitti nýverið Tushu Kamaleswaran, sjö ára gamla stúlku, sem hann bjargaði fyrir tveimur árum síðan. Eins og fram kom á Vísi í gær hitti Viðar, Tushu í byrjun september síðastliðinn. ITV sjónvarpsstöðin var að gera þátt um Tushu og björgunina og honum var boðið út til þess að hitta hana. Stúlkan varð fyrir skoti í árás sem gerð var á verslun í eigu frænda hennar í Suður-London. Hjarta hennar stöðvaðist og var Viðar einn þeirra sem fóru á vettvang. Hann bjargaði lífi hennar með því að framkvæma skurðaðgerð á götunni þar sem hann kom hjarta hennar aftur af stað. Á þessum tíma, þegar Viðar bjargaði Tushu var hann að vinna sem læknir á þyrlubjörgunarþjónustunni, London´s Air Ambulance. „Í London eru þyrlur á daginn því umferðin er svo þétt að það er auðveldara að komast í útköllin á þyrlu. Á kvöldin fórum við um á bíl því þá var of dimmt til að lenda þyrlunni í svona þéttri umferð eins og þarna er.“ Það var á einni slíkri kvöldvakt sem Viðar var á þegar hann kom að Tushu litlu. „Við vorum á bílnum þegar við fengum þetta útkall.“ Tusha lamaðist við árásina. „Það var æðislegt að sjá hana og að hún er jafn heil og hún er, hún er komin með einhverja tilfinningu í fótinn og getur hreyft hann aðeins.“ segir Viðar.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Sjá meira