Aron aðeins marki frá meti Ólafs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. janúar 2013 06:00 Aron Pálmarsson
Aron Pálmarsson, nýkrýndur íþróttamaður ársins, skoraði níu mörk í fyrsta landsleik eftir kjörið og aðeins einn handboltamaður hefur gert betur. Aron Pálmarsson, nýkrýndur íþróttamaður ársins, átti mjög flottan leik á móti Svíum í fyrrakvöld þegar hann skoraði 9 mörk úr aðeins 13 skotum. Aron virtist hafa lítið fyrir mörkum sínum og skoraði að því er virtist að vild þar til Svíar fóru markvisst að reyna að klippa hann út úr leiknum. Aron vantaði á endanum aðeins eitt mark til þess að jafna met. Þetta er nefnilega næsthæsta markaskor hjá nýkrýndum íþróttamanni ársins í sínum fyrsta leik með landsliðinu eftir kjörið. Ólafur Stefánsson skoraði marki meira í 32-28 sigri á Þjóðverjum í æfingaleik í upphafi árs 2010. Ólafur var reyndar í miklum ham í fyrstu tveimur leikjunum því hann skoraði níu mörk í öðrum sigri á Þjóðverjum daginn eftir. Þetta voru fyrstu landsleikir hans í sextán mánuði og hafði hann því verið kosinn tvisvar sinnum íþróttamaður ársins síðan að hann lék sinn síðasta landsleik. Ólafur bætti þá 41 árs gamalt met Geir Hallsteinssonar sem skoraði átta mörk í sigri á Spáni daginn eftir að hann var kosinn íþróttamaður ársins fyrir árið 1968. Geir skoraði síðan níu mörk í öðrum sigurleik á Spánverjum daginn eftir. Það sem Aron hefur þó fram yfir Ólaf er að Aron skoraði öll mörkin sín utan af velli á móti Svíum en sex af tíu mörkum Ólafs komu af vítalínunni. Geir skoraði 2 af 8 mörkum sínum af vítalínunni.
Mest lesið „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Körfubolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport „Hann er örugglega góður pabbi“ Handbolti Fleiri fréttir „Vantar meiri leiðindi og fávitaskap frá okkur“ „Miklu betra lið en Króatía“ Norðmenn með flautuna í Malmö „Hann er örugglega góður pabbi“ „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna „Eitt besta lið í heimi“ „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Danir komnir í gang á EM EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili „Það vantaði baráttuna“ Markamet slegið þegar Frakkar pökkuðu Portúgölum saman Haukur heill heilsu: „Þetta var svakalegt högg“ Valskonur sóttu sigur til Eyja í toppslagnum Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Anton og Jónas dæma mikilvægan leik hjá Alfreð Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Svíar voru fljótir að snúa við blaðinu í seinni hálfleik „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Skýrsla Vals: Ekki aftur Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Ungverjar með magnaða endurkomu en hvorugt náði Íslandi að stigum EM í dag: Ísland fer alltaf Krýsuvíkurleiðina „Náðum ekki að hjálpa markvörðunum okkar nóg“ „Þeir spila hægan bolta og reyna að svæfa mann“ „Þetta er klárlega högg“ Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Sjá meira