Af hverju lenti Ísland fyrir neðan Túnis á HM í handbolta? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2013 17:45 Mynd/Vilhelm
Íslenska handboltalandsliðið endaði í tólfta sæti á HM í handbolta á Spáni en ekki í ellefta sæti eins og í fyrstu var talið. Það þótti mörgum skrýtið en IHF hefur nú sent frá sér útskýringu á röð liða á mótinu. Í fyrstu benti margt til þess að Ísland hefði náð betri árangri á mótinu en Túnis. Túnis endaði neðar í sínum riðli (4. sæti en Ísland var í 3. sæti), Ísland var með betri markatölu í riðlinum (+17 á móti 0) og Ísland tapaði með færri mörkum í sextán liða úrslitunum (-2 á móti Frökkum, 28-30, í stað -7 hjá Túnis á móti Dönum, 23-30). Það er hinsvegar stórt tap Íslendinga á móti Dönum sem skilar Túnis upp í ellefta sætið á mótinu. Þegar liðunum sem féllu út úr 16 liða úrslitunum er raðað upp í sæti níu til sextán þá er fyrst farið eftir árangri þeirra á móti þeim liðum í riðlunum sem komust í útsláttarkeppnina. Túnis náði í tvö stig í þessum þremur leikjum alveg eins og Ísland en markatala liðsins er "bara" -6. Ísland var hinsvegar með í -9 í markatölu á móti fjórum efstu liðunum í sínum riðli en þar vóg þyngst að liðið tapaði með átta marka mun á móti Dönum.Leikir Íslands á móti efstu fjórum liðunum í sínum riðli: Ísland-Danmörk 28-36 (-8) Ísland-Rússland 25-30 (-5) Ísland-Makedónía 23-19 (+4) Samtals: 76-85 (-9)Leikir Túnis á móti efstu fjórum liðunum í sínum riðli: Túnis-Þýskaland 25-23 (+2) Túnis-Frakkland 27-30 (-3) Túnis-Brasilía 22-27 (-5) Samtals: 74-80 (-6)Röð þjóða á HM í handbolta á Spáni 2013:- Það á eftir að spila um efstu fjögur sætin 5. Þýskaland 6. Frakkland 7. Rússland 8. Ungverjaland 9. Pólland 10. Serbía 11. Túnis 12. Ísland 13. Brasilía 14. Makedónía 15. Hvíta-Rússland 16. Egyptaland 17. Alsír 18. Argentína 19. Sádí-Arabía 20. Katar 21. Suður-Kórea 22. Svartfjallaland 23. Síle 24. ÁstralíaMynd/HSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira