Hættulegar afleiðingar höfuðhögga Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 19. ágúst 2013 18:41 Jón Benjamín Sverrisson og Gunnar Örn Jónsson skrifuðu ritgerð um höfuðhögg í fótbolta.
Höfuðhögg þurfa ekki að vera þung til að valda varanlegum skaða að því er rannsóknir sýna. Þegar einstaklingur hefur fengið höfuðhögg er hann í töluverðri hættu á alvarlegum heilaskaða næstu daga á eftir ef hann fær annað högg. Ef einstaklingur, sem hefur fengið höfuðhögg og þjáist enn af einkennum þess, fær annað högg geta komið fram einkenni sem eru kölluð seinnahöggs-heilkenni (e.second impact syndrome). Afleiðingarnar geta verið heilabólga eða í versta falli dauði, jafnvel þótt höggið komi nokkrum vikum seinna en það fyrra. „Þetta stórhættulega högg á sér í raun engin tímamörk,“ segir Jón Benjamín Sverrisson, sem ásamt Gunnari Erni Jónssyni skrifaði ritgerðina: Höfuðhögg í knattspyrnu á Íslandi í íþróttafræðum. „Höggið þarf ekki að koma á höfuðið, það getur verið lent brjóstkassanum eða annars staðar á líkamanum sem gerir það að verkum að höfuðið kastast til,“ segir Jón Benjamín Jón Benjamín segir að heilkennið hafi lítið verið rannsakaðar á Íslandi. Til að glöggva sig á málinu skoðuðu þeir bandarískar rannsóknir um heilkennið en það hefur mikið verið rannsakað þar í landi. Á fundi sem þeir Gunnar Örn áttu með fræðslusviði Landspítalans hafi komið í ljós að slys sem þessi eru skráð sem frístundaslys en ekki íþróttameiðsl. Ástæða þess er vegna þess að efstu deildirnar í knattspyrnu hér á landi eru áhugamannadeildir en ekki atvinnumannadeildir. „Það er því enginn haldbær gagnagrunnur til um leikmenn eða þá sem hafa hlotið höfuðhögg en það er verið að vinna í því að taka það saman,“ segir Jón Benjamín. Hann segir að heilkennið hafi aðallega verið rannsakað á börnum og unglingum. Þjálfarar þurfi að vera meðvitaðir um afleiðingar höfuðhögga og um þá hættu sem fylgir þessari íþrótt. Jón Benjamín og Gunnar Örn höfðu samband við íþróttafélög og kynntu sér hversu mikil þekking væri á einkenninu hér á landi. Jón Benjamín telur að flestir þjálfarar séu meðvitaðir um þetta þó þekkingin sé kannski ekki nægilega mikil og mætti vera meiri. Það gerist allaf öðru hvoru að leikmenn fái höfuðhögg.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira