Umferðarsáttmáli – kurteisisreglur í umferðinni Kristján Ólafur Guðnason skrifar 16. september 2013 07:00 Umferðarslysum hér á landi hefur fækkað um 32% frá árinu 2008 til 2012. Banaslysum fækkaði stórlega á sama tíma. Um árangur er að ræða sem fyrst og fremst má rekja til bættrar umferðarmenningar hér á landi; betri, öruggari og ábyrgari aksturs ökumanna. Slysum hefur þó fjölgað lítillega það sem af er þessu ári miðað við árið 2012. Sú þróun er óásættanleg enda snýr hún að hegðun okkar sem vegfarenda í umferð. Það er í okkar höndum að fækka slysum. Mikilvægt er því að átta sig á þessari þróun og bregðast við í tíma. Tölur lögreglu sýna að eitt umferðarslys verður að meðaltali á dag á höfuðborgarsvæðinu. Fæst hafa þau verið þrjú á einni viku það sem af er þessu ári. Það sýnir að slysalausir dagar eru mögulegir. Spurningin er því ekki hvort við getum fjölgað þeim dögum og fækkað slysum, heldur hvernig. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Samgöngustofa munu á næstu dögum kynna Umferðarsáttmála vegfarenda, kurteisisreglur sem ætlað er að auka sameiginlegan skilning á því hvernig við viljum haga okkur í umferð, hvernig við sýnum hvert öðru tillitssemi og stuðlum þannig að auknu öryggi. Sáttmálinn hefur verið í vinnslu síðustu mánuði og fjórtán einstaklingar, lærðir og leikir er buðu sig fram til verkefnisins og hafa brennandi áhuga á umferðarmálum og umferðaröryggi, borið þar hitann og þungann. Heimasíðu og fésbókarsíðu hefur jafnframt verið haldið úti með það að markmiði að fá viðhorf sem flestra til þess hvernig umferð okkar og umferðarmenning á að vera, hvað við gerum vel og hvað við getum gert betur. Afraksturinn er Umferðarsáttmáli allra vegfarenda. Sáttmálinn verður formlega kynntur 18. september nk. í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík og eru allir þeir sem áhuga hafa á umferðarmálum og umferðaröryggi hvattir til að mæta og kynna sér hann frá fyrstu hendi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Umferðarslysum hér á landi hefur fækkað um 32% frá árinu 2008 til 2012. Banaslysum fækkaði stórlega á sama tíma. Um árangur er að ræða sem fyrst og fremst má rekja til bættrar umferðarmenningar hér á landi; betri, öruggari og ábyrgari aksturs ökumanna. Slysum hefur þó fjölgað lítillega það sem af er þessu ári miðað við árið 2012. Sú þróun er óásættanleg enda snýr hún að hegðun okkar sem vegfarenda í umferð. Það er í okkar höndum að fækka slysum. Mikilvægt er því að átta sig á þessari þróun og bregðast við í tíma. Tölur lögreglu sýna að eitt umferðarslys verður að meðaltali á dag á höfuðborgarsvæðinu. Fæst hafa þau verið þrjú á einni viku það sem af er þessu ári. Það sýnir að slysalausir dagar eru mögulegir. Spurningin er því ekki hvort við getum fjölgað þeim dögum og fækkað slysum, heldur hvernig. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Samgöngustofa munu á næstu dögum kynna Umferðarsáttmála vegfarenda, kurteisisreglur sem ætlað er að auka sameiginlegan skilning á því hvernig við viljum haga okkur í umferð, hvernig við sýnum hvert öðru tillitssemi og stuðlum þannig að auknu öryggi. Sáttmálinn hefur verið í vinnslu síðustu mánuði og fjórtán einstaklingar, lærðir og leikir er buðu sig fram til verkefnisins og hafa brennandi áhuga á umferðarmálum og umferðaröryggi, borið þar hitann og þungann. Heimasíðu og fésbókarsíðu hefur jafnframt verið haldið úti með það að markmiði að fá viðhorf sem flestra til þess hvernig umferð okkar og umferðarmenning á að vera, hvað við gerum vel og hvað við getum gert betur. Afraksturinn er Umferðarsáttmáli allra vegfarenda. Sáttmálinn verður formlega kynntur 18. september nk. í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík og eru allir þeir sem áhuga hafa á umferðarmálum og umferðaröryggi hvattir til að mæta og kynna sér hann frá fyrstu hendi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar