Húsleitir á fjórum stöðum vegna fíkniefnamála Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. maí 2013 15:03 Húsleitir voru gerðar á fjórum stöðum.
Húsleitir voru gerðar á fjórum stöðum í austurborg Reykjavíkur á föstudag vegna fíkniefnamála og lagði lögreglan hald á fíkniefni og fjármuni. Kannabisræktun var stöðvuð í íbúð fjölbýlishúss, en lagt var hald á tæplega 70 kannabisplöntur, auk tugi gramma af tilbúnum kannabisefnum. Ræktunin var í tveimur herbergjum íbúðarinnar, en barn var á heimilinu. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í tengslum við málið. Í íbúð í öðru fjölbýlishúsi fannst verulegt magn af amfetamíni. Tveir karlar, annar á þrítugsaldri og hinn á fertugsaldri, voru handteknir í þágu rannsóknarinnar, en mennirnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. Þá fundust nokkur hundruð grömm af tilbúnum kannabisefnum í bílskúr. Maður á fertugsaldri var handtekinn í tengslum við málið, en fíkniefni fundust jafnframt í fórum hans. Einnig var leitað á heimili mannsins og þar var lagt hald á umtalsverða fjármuni, sem taldir eru vera afrakstur fíkniefnasölu. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Fleiri fréttir Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Sjá meira