Fimmtán þúsund femínistar funda í Malmö Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 11. nóvember 2013 13:47 Meðal þeirra sem tala á ráðstefnunni eru Sofi Oksanen ritöhfundur, Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, mun tala á norrænu kvenna- og jafnréttisráðstefnunni Nordiskt Forum, sem haldin verður í Malmö dagana 12. til 15. júní á næsta ári. Ráðstefnan verður fjölmennasta ráðstefna femínista um árabil, en búist er við allt að fimmtán þúsund gestum á ráðstefnuna. Hún er haldin að frumkvæði norrænna kvennahreyfinga og segir í tilkynningu að markmið hennar sé taka púlsinn á stöðu jafnréttismála í dag og leggja línurnar fyrir baráttu morgundagsins. Meðal þeirra sem tala á ráðstefnunni eru auk Vigdísar, Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, Sofi Oksanen rithöfundur, Sanne Søndergaard grínisti, Ritt Bjerregaad fyrrverandi ráðherra, Nadje Al-Ali, rithöfundur og prófessor, Nina Bjørk, blaðamaður og rithöfundur, og Gail Dines prófessor. Síðast var norræn kvennaráðstefna haldin árið 1994 í Turku í Finnlandi og þá fjölmenntu íslenskar konur og búast skipuleggjendur við því að svo verði einnig nú. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga, héldum fjölmennan kynningarfund á kvennaheimilinu Hallveigarstöðum nýverið, fáum mikið af fyrirspurnum og nú hvetjum við íslenskar konur til að skrá sig sem fyrst og taka þátt í þessum sögulega viðburði,“ segir Hildur Helga Gísladóttir, framkvæmdastýra Kvenfélagasambands Íslands, sem setið hefur í stýrhópi ráðstefnunnar fyrir hönd Íslands. „Ráðstefnan markar tímamót í sögu norrænna kvennahreyfinganna en þetta er í fyrsta sinn sem þær skipuleggja svo umfangsmikla ráðstefnu. Og það er mjög mikill áhugi á því að taka þátt í henni á öllum Norðurlöndunum, bæði hjá opinberum aðilum, frjálsum félagasamtökum og einstaklingum,“ segir Hildur Helga, framkvæmdastýra sambandsins. Í tilkynningunni segir jafnframt að SÞ hafi ekki haldið ráðstefnu um málefni kvenna síðan í Peking árið 1995. Ástæða þess sé bakslag í jafnréttisbaráttu heimsins og ótti við að markmið sem þá voru uppfyllt séu í hættu verði opnað á samningaumleitanir um þau.
Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Innlent Fleiri fréttir Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Sjá meira