Segir ákæruvaldið hafa gengið of langt í málinu Elísabet Hall skrifar 13. október 2013 18:43
Hæstiréttur vísað á dögunum frá máli er varðaði 16 ára stúlku sem ákærð var fyrir rán og fjársvik. Stúlkan hafði mælt sér mót við mann af stefnumótasíðunni einkamal.is og boðið honum vændi gegn greiðslu. Óskaði stúlkan eftir því að maðurinn greiddi henni 20 þúsund krónur í reiðufé gegnum glugga á bifreið hans og þegar maðurinn rétti henni peninginn tók stúlkan til fótanna og stakk af. Var stúlkunni gefið að sök að hafa svikið manninn um viðskipti þar sem hún hafi ekki efnt kynlífsviðskiptin. Í úrskurði héraðsdóms segir að eini möguleiki hinnar ákærðu til að losna frá refsiábyrgð hafi verið að standa við kynlífsþjónustuna. „Það er mat dómsins að vændiskaup viðsemjanda ákærðu, sem var barn að aldri, njóti ekki réttarverndar 248. gr. almennra hegningarlaga þótt um vændiskaupin hafi farið eins og lýst er í ákærunni. Vændiskaupandinn gat ekki vænst verndar refsivörslunnar þótt um viðskiptin hafi farið eins og lýst er í ákærunni. Önnur skýring á efni 248. gr. almennra hegningarlaga leiddi til þess að eini möguleiki ákærðu til að losna frá refsiábyrgð hafi verið sá að standa við kynlífsþjónustuna sem um ræðir. Að mati dómsins er sú niðurstaða ótæk.“ Jón Bjarni Kristjánsson, héraðsdómslögmaður og verjandi stúlkunnar, segir ákæruvaldið hafa gengið of langt í málinu. „Ég held að eina ályktunin sé hægt að draga af þessu máli sé að lögreglustjóri hafi farið fram úr sér og hefði mátt sýna frumkvæði af því að fella málið niður. Það má eiginlega segja að þetta svipi til þess sem hefur verið viðurkennt um langa hríð að þú getir til að mynda ekki innheimt spilaskuldir eða fíkniefnaskuldir. Í þessu tilfelli ganga viðskiptin gróflega gegn almennu velsæmi því hér er verið að tala um vændiskaup af barni“. Samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa hefur var gefin út ákæra á hendur manninum en ekki hefur náðst í Sigríði Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, vegna málsins.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Sjá meira