Sjóðirnir vilja kaupa báða einkabankana 14. febrúar 2013 06:00 Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, staðfestir að áhugi sé á bankanum og að vilji sé til þess að selja hann. fréttablaðið/vilhelm
Framtakssjóður Íslands (FSÍ), stórir lífeyrissjóðir og aðilar tengdir MP banka hafa undanfarnar vikur átt í viðræðum við slitastjórn Glitnis um kaup á 95 prósenta hlut hennar í Íslandsbanka. Viðræðurnar eru á byrjunarstigi þótt þær hafi átt sér langan aðdraganda. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins vonast bjóðendurnir til að fá bankann töluvert undir innra virði hlutar Glitnis, sem er um 133 milljarðar króna. Þær verðhugmyndir sem nefndar voru við Fréttablaðið voru að greiða á bilinu 0,55-0,70 krónur fyrir hverja krónu. Það myndi þýða að kaupverðið sem bjóðendurnir eru tilbúnir að borga fyrir 95 prósenta hlut Glitnis er á bilinu 73 til 93 milljarðar króna. Þeir hafa líka áhuga á að kanna kaup á 87 prósenta hlut þrotabús Kaupþings í Arion banka.Á byrjunarstigi DV greindi frá því í gærmorgun að þreifingar ættu sér stað um sölu Íslandsbanka. Þar var sagt að þær væru á milli MP banka og slitastjórnar Glitnis. FSÍ staðfesti hins vegar í gær að sjóðurinn kæmi að slíkum þreifingum, en að málið væri skammt á veg komið. Þá fékk Fréttablaðið einnig staðfest að stórir lífeyrissjóðir stæðu einnig að baki mögulegum kaupum. Er þar um að ræða sömu sjóði og eiga FSÍ að mestu. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, segir málið á byrjunarstigi. „Það er áhugi á bankanum. Hann hefur ekki verið í virku söluferli en Glitnir er í slitameðferð og hluti af því ferli er að selja þær eignir sem Glitnir á. Það hefur því legið lengi fyrir að Íslandsbanki er til sölu." Spurð um hvort þrotabú Glitnis vonist til að sala Íslandsbanka liðki fyrir því að Seðlabanki Íslands samþykki undanþágu frá gjaldeyrishöftum fyrir nauðasamninga Glitnis segist Steinunn ekki hafa neina skoðun á því. „Það sem er mikilvægast er að það komi traustir framtíðareigendur að Íslandsbanka." Forsvarsmenn MP Banka vildu ekkert tjá sig um málið þegar leitað var upplýsinga um viðræðurnar í gær. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er bankinn þó viðriðinn þær sem ráðgjafi. Auk þess er vilji innan eigendahóps MP banka að koma að kaupunum ef af þeim verður. Skúli Mogensen, stærsti eigandi MP banka, er þar sérstaklega nefndur. Líklegt er að aðrir stórir fjárfestar, á borð við tryggingafélög eða eignastýringarsjóði annarra banka, myndu einnig koma að bankakaupunum ef af þeim verður, enda um mjög stóra fjárfestingu að ræða.Hafa líka áhuga á Arion Heimildir Fréttablaðsins herma að FSÍ, og stærstu lífeyrissjóðir landsins, hafi í töluverðan tíma verið að vinna að þeim möguleika að kaupa Íslandsbanka og Arion banka. Spilar margt þar inn í. Í fyrsta lagi er mikill skortur á arðvænlegum fjárfestingatækifærum á Íslandi. Gjaldeyrishöft gera það síðan að verkum að sjóðirnir mega ekki fjárfesta erlendis. Þeir hafa því yfir miklum fjármunum að ráða sem erfitt er að ávaxta. Bankar væru því kjörin fjárfesting að þeirra mati. Í öðru lagi hafa lífeyrissjóðirnir verið óánægðir með hvernig íslensku bankarnir hafa losað um eignarhald á þeim fyrirtækjum sem þeir hafa tekið yfir. Þeim hefur fundist þeir hafa verið að selja þau of mikið til eigin viðskiptavina og með því stækka það kerfislega vandamál sem ríkir innan íslensks viðskiptalífs. Í þriðja lagi sjá þeir tækifæri til að nýta bankana til að koma íslensku atvinnulífi almennilega í gang og þar af leiðandi fjölga fjárfestingakostum sínum.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Sjá meira