Móðureðlið og dýragarðsbörn Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir skrifar 2. janúar 2013 06:00 Á síðasta áratug hefur jafnrétti færst aftur í íslensku samfélagi. Konur hafa lægra kaup og skulu því vera heima með börn, konur eru heima með börn og skulu því hafa lægra kaup. Því miður er þetta sjálfhvetjandi kerfi. Sumir vilja meina að þetta sé eðlilegt, náttúrulegt og tilkomið vegna sterks móðureðlis kvenna. En hvað er móðureðlið? Þörfin fyrir að bregðast við þörfum ungbarna ristir djúpt og engin heilbrigð manneskja getur annað en brugðist við þurfandi smábarni. Ef bros og hjal virka ekki þá á ungbarn annað sterkara vopn sem hefur þróast í tugþúsund ára, grátur ungbarna virkar nístandi á flesta fullorðna einstaklinga. Kannski hallar eitthvað á karlmenn með þetta, ég veit það ekki. Persónulega þekki ég ekki marga karla sem hafa ekki áhuga og getu til að sjá um börn. Þetta ríka eðli mannsins hefur líklega þróast þar sem börn þurfa mikla og langa umönnun og það hefur í sögu mannsins verið nauðsynlegt að fleiri komi að henni en móðirin. Það þarf þorp til að ala upp barn er lausleg þýðing á ensku máltæki sem lýsir vel hvernig umönnun barna hefur lengst af verið háttað í samfélagi manna. Börn geta frá fæðingu myndað sterk tilfinningatengsl við fleiri en einn umönnunaraðila, það er í þeirra eðli. Þéttriðið, sveigjanlegt félagskerfi og sterk verndartilfinning gagnvart börnum er grundvöllur velgengni mannkyns. Þar kemur maður í manns stað, kona í karls stað, móðir í móður stað.Fjölbreyttar langanir Kannski er það líka arfur frá formæðrum mínum sem stóðu uppi með húsið fullt af föðurlausum börnum eftir að bátur fórst á veiðum úti fyrir Vestfjörðum sem gerir það að verkum að ég finn hjá mér sterka hvöt – eðli – til að geta séð fyrir börnunum mínum. Í öllu falli þá tóku mínar langanir og draumar sjálfkrafa mið af breyttum aðstæðum þegar ég varð mamma og í stað þess að að fylgja fyrri braut – sem hefði þýtt mikið atvinnu- og fjárhagslegt óöryggi og tíða flutninga – þá var stefnan tekin á heldur öruggari slóðir. Eftir sem áður þá hafði ég sem manneskja fjölbreyttar langanir og þarfir sem ég leitaðist við að uppfylla í takt við breyttar aðstæður. Stundum hunsaði ég eigin þarfir í löng tímabil vegna annarra ríkari hagsmuna og stundum lagði ég erfiða hluti á börnin mín til að framkvæma hluti sem ég taldi að væri fjölskyldunni fyrir bestu til lengri tíma. Þessi leit að jafnvægi á milli ólíkra þarfa innan fjölskyldunnar er eitthvað sem flestir kannast við. Og sjálfsagt kannast líka flestir við að það er auðveldara að ná þessu jafnvægi í samvinnu foreldra.Í vöggu í bátnum Fyrir nokkrum árum þurfti ég að hjálpa nemanda við veiðar fyrir rannsóknarverkefni. Á meðan við biðum eftir að netin fylltust var okkur boðið kaffi á bænum. Það barst í tal hvernig gengi með strákinn minn sem þá var ungur. Ég sagði að það gengi vel en auðvitað væri erfitt að skreppa svona á kvöldin. Þá drógu hjónin fram myndaalbúmið og sýndu mér myndir af meðgöngu og fyrstu mánuðum yngsta sonar síns. Á fyrri myndinni sjást hjónin – hún þá kasólétt – saman að veiðum úti á vatni. Á hinni seinni – á vertíð sléttu ári seinna – sést sonur þeirra sem hafði verið komið fyrir í vöggu í bátnum og svaf vært á meðan foreldrarnir vitjuðu netjanna. Þetta hefur mér alltaf þótt dæmi til eftirbreytni. Ég er ekki að leggja til að smábörn séu send á Halamið strax á fyrsta ári. En samvinna foreldra um umönnun ungbarna og samvinna foreldra um framfærslu fjölskyldunnar hlýtur að vera eitthvað sem við getum öll sniðið að okkar aðstæðum og ætti að vera regla frekar en undantekning. En þetta var þá. Konur tóku þátt af illri nauðsyn. Já, það er satt að konur og karlar unnu mikið og hjálpuðust að við umönnun barna af illri nauðsyn, annars hefðum við hreinlega dáið út. En þessi nauðsyn myndar grunn meðfæddra tilfinninga okkar og þarfa í dag.Meðfætt eðli Veiðihundur sækir ekki fugla af nauðsyn. Hundarnir eru að sýna eðli sem kom til vegna nauðsynjar og á uppruna sinn enn dýpra, í veiðieðli úlfa. Vinnueðlið má reyndar rækta úr hundum. Margir kjölturakkar virðast hafa litlar sem engar áhyggjur af því að vera fullkomlega háðir öðrum. Kannski má líka rækta sjálfsbjargarhvötina úr konum, ég veit ekki hvort einhver hefur áhuga á því. Hitt veit ég að það veldur mikilli streitu hjá mönnum og dýrum að fá ekki útrás fyrir það meðfædda eðli að vera sjálfstæð. Áhrif þessarar streitu á móðureðlið koma hvergi betur fram en í dýragörðum þar sem það gengur oft erfiðlega að fá villt dýr til að eiga og sinna eigin afkvæmum. Það er sama hve vel líkamlegum þörfum þeirra er sinnt. Það eru hvorki söguleg, líffræðileg né tilfinningaleg rök fyrir því að ýta mæðrum út úr virku samfélagi undir því yfirskini að þeim sé best borgið inni á heimilunum, það sé þeim eðlilegt. Það þjónar hvorki hagsmunum kvenna né barna. Hverra hagsmunum það þjónar er þó gömul saga og ný og óþarfi að útlista það frekar hér. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þjóðkirkja á réttri leið Þórður Guðmundsson Skoðun Gervigreind í námi: 5 lykilskref fyrir öryggi nemenda Björgmundur Guðmundsson Skoðun Falin tækifæri til náms Heiða Ingimarsdóttir Skoðun Við þurfum hagkvæmu virkjunarkostina Gunnar Guðni Tómasson Skoðun Staðreyndir um einfaldara regluverk Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur Margrét Kristín Blöndal Skoðun Veitingastaðir eru ekki kjarnorkuver Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun “Jákvæð viðbrögð” um veiðigjaldið? Heimir Örn Árnason Skoðun Halldór 21.06.2025 Halldór Rangfærslur Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðkirkja á réttri leið Þórður Guðmundsson skrifar Skoðun Staðreyndir um einfaldara regluverk Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Við þurfum hagkvæmu virkjunarkostina Gunnar Guðni Tómasson skrifar Skoðun Falin tækifæri til náms Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreind í námi: 5 lykilskref fyrir öryggi nemenda Björgmundur Guðmundsson skrifar Skoðun Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson skrifar Skoðun “Jákvæð viðbrögð” um veiðigjaldið? Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Skattgreiðendur látnir borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Nokkur orð um Kúbudeiluna og viðskiptabannið Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Gróf misbeiting illa fengins valds Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Að sækja gullið (okkar) grein 2 Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Pólítískt hugrekki Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vísir að lægri orkureikningi Einar Vilmarsson skrifar Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt Ian McDonald skrifar Skoðun Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Vönduð vinnubrögð? Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Veitingastaðir eru ekki kjarnorkuver Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Nýr vegvísir Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna Clara Ganslandt skrifar Skoðun Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Blaður 35 Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Kaldar kveðjur frá forsætisráðherrra til ferðaþjónustunnar Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Nú hefst samræmt próf í stærðfræði Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Sanngirni í Kópavogsmódelinu Eydís Inga Valsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson skrifar
Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley skrifar
Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson skrifar
Skoðun Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar? Bogi Ragnarsson skrifar
Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar