Starfsmannastjóri WikiLeaks hakkaði sig inn í stjórnarráðið 2. janúar 2013 13:34 Viðmælandi BBC, Siggi, segist hafa fyrst hakkað sig inn í stjórnaráðið árið 2004 og að föður sínum hafi verið kennt um innbrotið.
Siggi, eða Q eins og hann segist hafa verið kallaður þegar hann starfaði sem starfsmannastjóri WikiLeaks, segist hafa hakkað sig inn á vef stjórnarráðsins þegar hann var tólf ára gamall, eða árið 2004. Þetta kemur fram í útvarpsþætti á BBC þar sem fjallað er um hakkara víðsvegar um heiminn. Þáttastjórnandinn ræðir þar við hinn tvítuga Sigga frá Íslandi sem segist hafa fyrst hakkað sig inn í stjórnaráðið fyrir um áratugi síðan. Hann segir að föður sínum hafi verið kennt um innbrotið. Siggi segir feril sinn sem hakkari ekki mjög langan. Ferillinn spannar engu að síður átta ár. Siggi segist hafa hakkað sig inn í eftirlitsmyndavélar á herstöð í ónefndu landi. Spurður hvort hann hafi óttast að hann yrði handtekinn vegna innbrotanna, svaraði hann "mér leið eins og ég væri ósigrandi." Siggi segist einnig hafa lekið gögnum í hruninu en í kjölfarið var bíll hans eyðilagður. Siggi segist hafa vitað hver það var sem eyðilagði bílinn. Hefndaraðgerðin var í frumlegri kantinum; Siggi gaf út dánarvottorð á nafni mannsins og þar af leiðandi gat hann ekki notað kennitölu sína, sem getur valdið töluverðum vandræðum hér á landi. Siggi fullyrðir einnig að geti, ef mikið liggur við, látið fólk líta út fyrir að vera gjaldþrota. Í viðtalinu ljóstrar þáttastjórnandi upp að Siggi hafi byrjað að vinna hjá uppljóstrunarsamtökunum WikiLeaks aðeins átján ára gamall. Þá starfaði hann sem starfsmannastjóri (e. chief of staff) og gekk þá undir nafninu Q.Hægt er að hlusta á þáttinn á síðu BBC eða hér fyrir neðan.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Sjá meira