Tölum um hlutina eins og þeir eru Frosti Ólafsson skrifar 4. júlí 2013 07:30 Í aðdraganda nýliðinna kosninga voru allir flokkar sammála um mikilvægi þess að móta langtímastefnu í efnahagsmálum sem lagt gæti grunn að sjálfbærum og sterkum hagvexti á Íslandi. Að sama skapi var það mat stjórnmálamanna að leggja ætti aukna áherslu á uppbyggilega, málefnadrifna og gagnsæja umræðu um leiðir til aukinnar hagsældar. Grunnmarkmið allra flokka er það sama, þ.e. betri lífskjör á Íslandi, þó að ekki ríki einhugur um nákvæmar leiðir að því marki.Árangur næst ekki án umfangsmikilla breytinga Til að raunveruleg skref séu tekin í átt til bættra lífskjara duga smáskammtalækningar illa. Ráðast þarf í róttæka uppstokkun á ýmsum sviðum efnahagslífsins til að grundvöllur sé fyrir sjálfbærri aukningu í verðmætasköpun. Í því felst að stjórnmálin sýni hugrekki til að nálgast fjölda viðfangsefna með nýjum hætti og hreyfi við ýmsum heilögum kúm. Til að slíkt geti átt sér stað er opinskátt og uppbyggilegt samtal allra hlutaðeigandi aðila nauðsynleg forsenda. Það er vænlegast til árangurs að tala um hlutina eins og þeir eru. Krónan er ónothæfur gjaldmiðill í núverandi mynd, skuldastaða hins opinbera er á mörkum þess að teljast sjálfbær, gjaldeyrishöft draga mátt úr hagkerfinu, framleiðni er víða verulega ábótavant, skatta- og fjárfestingaumhverfi er flókið, útflutningur er alltof háður náttúruauðlindum og aukin efnahagsleg umsvif síðustu ára hafa í of ríkum mæli verið drifin af neyslu. Verði ekki tekið á þessum rótarmeinum með markvissum hætti eru allar líkur á að fram undan sé efnahagsleg stöðnun og rýrnun lífsgæða. Sé litið á björtu hliðarnar þá höfum við mikil tækifæri til að mæta þessum áskorunum. Með trúverðugri langtímaáætlun í opinberum fjármálum og meiri aga í framkvæmd fjárlaga væri fyrsta skref stigið í átt til aukins stöðugleika. Bætt umgjörð vinnumarkaðar og sterkara vopnabúr Seðlabanka Íslands efla þjóðhagsleg skilyrði enn frekar. Undirbúningur er hafinn að þessum verkefnum og er það fagnaðarefni. En betur má ef duga skal. Á endanum byggja efnahagsleg lífskjör á þeim verðmætum sem tekst að skapa. Þar reynir verulega á framsýni og dug stjórnmálanna við mótun hagfellds umhverfis. Tækifærin eru rík, en þau þarf að nýta. Skilvirkt regluverk og samkeppnisumhverfi virkja framleiðniauka hjá smáum og stórum fyrirtækjum. Einföldun á flóknu tolla- og neysluskattaumhverfi opnar fyrir erlenda samkeppni og styrkir hag neytenda. Sterkur og samræmdur rammi um náttúruauðlindir með megináherslu á hámörkun verðmætasköpunar skapar burðarsúlur fyrir hagkerfið. Aukin fjárfesting í háskóla- og tæknimenntun samhliða uppstokkun í umgjörð rannsóknar- og þróunarstarfs styður við vöxt fyrirtækja sem byggja á hugviti og þekkingu. Einföldun skattheimtu af fjármagni og réttir hvatar stuðla að aukinni atvinnuvegafjárfestingu. Sértækar aðgerðir geta stutt við virðisauka og nýsköpun í óarðbærum greinum, s.s. landbúnaði og ferðaþjónustu. Að lokum hefur Samráðsvettvangur um aukna hagsæld lagt fram greinargóða samantekt á möguleikum til að nýta opinbera fjármuni betur.Sátt um mikilvægi verðmætasköpunar Bætt umhverfi til verðmætasköpunar er vitanlega ekki eina verkefni stjórnvalda. Hún er aftur á móti grunnforsenda þess að hægt sé að standa undir öðrum mikilvægum þáttum samfélagsins og styðja við heimili í erfiðri stöðu. Sterkt velferðarkerfi, markvissar aðgerðir í skuldamálum og uppbygging annarra samfélagslegra innviða byggja á endanum á því að hér sé verðmætum til að dreifa. Aðgerðirnar hér að ofan eru umfangsmiklar og krefjandi. Til að af þeim geti orðið þurfa allir að leggja lóð sín á vogarskálarnar. Með hliðsjón af því þurfa stjórnmálin að móta skýra framtíðarsýn, byggja upp fyrirsjáanleika í aðgerðum sínum og eiga heiðarlegt, gagnsætt samtal við bæði atvinnulíf og heimili eigi að skapast sátt um verkefnið og trú á bættum lífskjörum. Með öðrum orðum þarf að búa til trúverðuga áætlun og tala um hlutina eins og þeir eru. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þrefölda svipa verðtryggingar á Íslandi Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hættum að hvísla um loðnu og gætum hagsmuna íbúa Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Hvaða áhrif hefði ESB-aðild á verðbólguna? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Rafbyssugríman er fallin Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Skoðun Íslenskir hermenn? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hver borgar brúsann? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Nei, ég vil ekki vinna með þér! Björn Leví Gunnarsson Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun Af hverju upplifa sumir kjósendur fjarlægð frá Samfylkingunni? Valerio Gargiulo Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lýðræðislegt, sanngjarnt, gott Alex Leó Kristinsson skrifar Skoðun Nei, ég vil ekki vinna með þér! Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Þrefölda svipa verðtryggingar á Íslandi Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver borgar brúsann? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefði ESB-aðild á verðbólguna? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Er aithingi.is hættulegt lýðræðinu? Kristján Logason skrifar Skoðun Rafbyssugríman er fallin Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju upplifa sumir kjósendur fjarlægð frá Samfylkingunni? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar Skoðun Ár í eldlínunni Einar Bárðarson skrifar Skoðun Íslenskir hermenn? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun „Er pláss fyrir sjálfstæða sjónvarpsmiðla á Íslandi?“ Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson skrifar Skoðun „Einsdæmi um réttindamissi“ Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Ekki loka á okkur Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Ykkur er óhætt að treysta okkur Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fallegu Dalirnir við þjóðveg 60 Þórunn Magnea Jónsdóttir skrifar Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Áskorun um opnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar um einhverfu Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Bæn grunnskólakennara – opið bréf til nýs meirihluta í Reykjavík um menntamál Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Er það glæpur að vilja stunda ábyrgar fiskveiðar? Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Að slá gras á umferðareyjum er það mikilvægara en geðheilsa barna? Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvar er Ísland kynnt sem umsóknarríki? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Hafró ver hvalinn en gleymir fiskinum Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Einmitt, alveg hreint stórkostleg vörn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað verður gert á aðalfundinum á morgun Eiríkur? Björn Sævar Einarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar og handboltinn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Lítil bjalla, stórt hjarta: Hvernig við getum verndað bæði kisur og fugla Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Erfitt að veiða ufsa án kvóta í þorski Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar Skoðun Jæja kosningunum lokið Elías B. Elíasson skrifar Sjá meira
Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun
Skoðun Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar
Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson skrifar
Skoðun Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Skoðun Áskorun um opnun þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar um einhverfu Telma Sigtryggsdóttir skrifar
Skoðun Bæn grunnskólakennara – opið bréf til nýs meirihluta í Reykjavík um menntamál Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Lítil bjalla, stórt hjarta: Hvernig við getum verndað bæði kisur og fugla Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Stýrivextir hækka og allir eru að græða – nema þú Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson,Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun