Hræðslan við gleðina 4. júlí 2013 09:15 Einn ástsælasti fjölmiðlamaður Íslands, Hemmi Gunn, er fallinn frá eins og alþjóð veit. Nú var ég eins og meirihluti þjóðarinnar ein af þeim sem vissu vissulega hver maðurinn var. Í áratugi naut ég þess að horfa og hlusta á hann á skjánum og í útvarpi, gefa frá sér þessa einlægu gleði og hlýju sem einkenndi hann. Hemmi skildi eftir sig heila þjóð sem fyllist af gleði og brosi þegar hún hugsar til hans. Einlægni hans og opinská umræða um þær hindranir sem hann tókst á við gerði það einnig að verkum að við treystum því og höfðum fullan skilning á því að Hemmi gat bæði flogið hátt og fallið hratt. Mér fannst áhugavert að sjá og heyra vini Hemma segja frá lífi hans og störfum í bæði í sjónvarpi og útvarpi. Eitt af því sem ég tók eftir var að margir töluðu um að; „Þrátt fyrir gleðina var Hemmi var mjög vel gefinn maður!“ Þessi sérstaka fullyrðing fékk mig til að hugsa; hvenær tókum við þá ákvörðun að segja að fólk sem hefur hina náttúrulegu gleði í hjartanu sé einhverra hluta vegna ekki vel gefið? Þá langar mig einnig til að finna þann „frumkvöðul“ sem gaf út þá yfirlýsingu að ekki skyldi taka mark á fólki sem hefði náttúrulega hæfileika til að gefa af sér gleði og hamingju. Þegar þetta er skrifað hafa hundruð Íslendinga menntað sig og þjálfað sérstaklega til að hjálpa fólki til að finna gleðina, hamingjuna í lífinu með aðferðafræði eins og markþjálfun og jákvæðri sálfræði. Við lesum daglega um niðurstöður rannsókna sem sýna að það skiptir fólki mun meira máli að hafa skýran tilgang í lífi og starfi, en hærri laun eða önnur hlunnindi. Fólk þarf í dag sérstaka aðstoð sérfræðinga til að finna gleðina og hamingjuna í lífinu, og jafnvel þeir sem hafa þennan náttúrulega hæfileika eru hræddir við að sýna hann, hræddir við að fá það orðspor að vera vitlausir vegna þess að gleðin er þeirra sterka hlið. Dagurinn sem við förum að samþykkja fólk, hæfileika þess og getu án þess að athuga hvaða stafróf er á bak við nafnið þess inni á Linkedin er dagurinn sem við förum sem þjóð að efla og njóta hvers annars til fulls. Verum hvert öðru hvatning til góðra verka, hleypum gleðinni inn! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Valdhafar sem óttast þjóð sína eiga ekki skilið völdin Ágústa Árnadóttir Skoðun Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun Halldór 14.06.2025 Halldór Engin haldbær rök fyrir því að dánaraðstoð skaði líknarmeðferð Ingrid Kuhlman Skoðun Aðlögun á Austurvelli Heiða Ingimarsdóttir Skoðun Brotin stjórnarandstaða í fýlu Arnar Steinn Þórarinsson Skoðun Til hamingju með daginn á ný! Árni Guðmundsson Skoðun Úthlutun Matvælasjóðs Fjóla Einarsdóttir Skoðun Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum Davíð Stefán Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Valdhafar sem óttast þjóð sína eiga ekki skilið völdin Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Til hamingju með daginn á ný! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum Davíð Stefán Guðmundsson skrifar Skoðun Versta sem gæti gerzt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Aðlögun á Austurvelli Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Brotin stjórnarandstaða í fýlu Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Úthlutun Matvælasjóðs Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Engin haldbær rök fyrir því að dánaraðstoð skaði líknarmeðferð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti næst ekki með ranglæti Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Fagleg rök fjarverandi við opinbera styrkveitingu Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ísland smíðar – köllum á hetjurnar okkar Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Hvenær kemur að okkur? Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Frjór jarðvegur fyrir glæpagengi til að festa rætur Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Án greiningar, engin ábyrgð Gísli Már Gíslason skrifar Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar Skoðun Verkin sem ekki tala Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gleymdu að vanda sig Vanda Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Vindhögg Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Skref aftur á bak fyrir konur með endómetríósu Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Staða leikskólamála í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindaraðstoð: Kennarinn endurheimtir dýrmætan tíma Björgmundur Guðmundsson skrifar Sjá meira
Einn ástsælasti fjölmiðlamaður Íslands, Hemmi Gunn, er fallinn frá eins og alþjóð veit. Nú var ég eins og meirihluti þjóðarinnar ein af þeim sem vissu vissulega hver maðurinn var. Í áratugi naut ég þess að horfa og hlusta á hann á skjánum og í útvarpi, gefa frá sér þessa einlægu gleði og hlýju sem einkenndi hann. Hemmi skildi eftir sig heila þjóð sem fyllist af gleði og brosi þegar hún hugsar til hans. Einlægni hans og opinská umræða um þær hindranir sem hann tókst á við gerði það einnig að verkum að við treystum því og höfðum fullan skilning á því að Hemmi gat bæði flogið hátt og fallið hratt. Mér fannst áhugavert að sjá og heyra vini Hemma segja frá lífi hans og störfum í bæði í sjónvarpi og útvarpi. Eitt af því sem ég tók eftir var að margir töluðu um að; „Þrátt fyrir gleðina var Hemmi var mjög vel gefinn maður!“ Þessi sérstaka fullyrðing fékk mig til að hugsa; hvenær tókum við þá ákvörðun að segja að fólk sem hefur hina náttúrulegu gleði í hjartanu sé einhverra hluta vegna ekki vel gefið? Þá langar mig einnig til að finna þann „frumkvöðul“ sem gaf út þá yfirlýsingu að ekki skyldi taka mark á fólki sem hefði náttúrulega hæfileika til að gefa af sér gleði og hamingju. Þegar þetta er skrifað hafa hundruð Íslendinga menntað sig og þjálfað sérstaklega til að hjálpa fólki til að finna gleðina, hamingjuna í lífinu með aðferðafræði eins og markþjálfun og jákvæðri sálfræði. Við lesum daglega um niðurstöður rannsókna sem sýna að það skiptir fólki mun meira máli að hafa skýran tilgang í lífi og starfi, en hærri laun eða önnur hlunnindi. Fólk þarf í dag sérstaka aðstoð sérfræðinga til að finna gleðina og hamingjuna í lífinu, og jafnvel þeir sem hafa þennan náttúrulega hæfileika eru hræddir við að sýna hann, hræddir við að fá það orðspor að vera vitlausir vegna þess að gleðin er þeirra sterka hlið. Dagurinn sem við förum að samþykkja fólk, hæfileika þess og getu án þess að athuga hvaða stafróf er á bak við nafnið þess inni á Linkedin er dagurinn sem við förum sem þjóð að efla og njóta hvers annars til fulls. Verum hvert öðru hvatning til góðra verka, hleypum gleðinni inn!
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun
Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen skrifar
Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar
Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar
Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar
Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun