
Tvær hliðar á sama eða sitthvorum peningnum?
Það sem kemur öllu meira á óvart er hversu ógagnsæ umræðan hefur verið, sérstaklega í ljósi þess um hversu umfangsmikið mál er að ræða. Ein af höfuðástæðum þess hve ógagnsæ hún hefur reynst er sú beina tenging sem hefur verið búin til á milli skuldaniðurfærslu og uppgjörs við kröfuhafa gömlu bankanna.
Sterk rök og forsendur eru fyrir því að ná hagfelldu uppgjöri við kröfuhafa bankanna. Ef tryggja á ytri sjálfbærni hagkerfisins og skilyrði fyrir afnámi hafta verður ekki hægt að greiða útistandandi kröfur að fullu á gengi dagsins í dag. Um þetta eru flestir sammála. Með hliðsjón af þessu er hagfelld niðurstaða í uppgjöri við kröfuhafa gömlu bankanna forsenda fyrir afnámi gjaldeyrishafta. Þannig mætti segja að þessi tvö mál tengist ófrávíkjanlega og séu tvær hliðar á sama peningi.
Veikari samningsstaða
Það sama á ekki við um niðurfærslu höfuðstóls húsnæðislána. Sú aðgerð tengist áðurnefndu afnámi hafta og samningum við kröfuhafa ekki að öðru leyti en því að fjármögnun hennar myndi reynast ríkissjóði auðveldari ef hagfelld niðurstaða næst í uppgjöri við kröfuhafa. Þvert á móti má færa fyrir því rök að samningsstaða gagnvart kröfuhöfum verði veikari og útfærsla afnáms hafta flóknari ef nauðsyn þykir að tengja þær aðgerðir við niðurfærslu húsnæðislána.
Rétt er að undirstrika að markmið þessarar greinar er ekki að meta efnahagslegar afleiðingar eða réttmæti skuldaniðurfærslu. Sitt sýnist hverjum eins og gengur og gerist með aðrar millifærslur á vegum hins opinbera. Það er aftur á móti grundvallarkrafa að gagnsæi ríki í pólitískri umræðu, sér í lagi þegar um jafn umfangsmikið mál er að ræða. Niðurfærsla skulda verður aldrei ókeypis eða algjörlega laus við neikvæðar afleiðingar. Það er pólitísk ákvörðun hvort ráðast skuli í hana og eðlilegt að stjórnmálamenn ræði hana á þeim grundvelli.
Afnám hafta er aftur á móti lykilþáttur í efnahagslegri uppbyggingu Íslands og þar með bættum lífskjörum allra Íslendinga til lengri tíma. Til að hægt sé að losa höftin þarf að liggja fyrir skynsamleg og hagfelld útfærsla á uppgjöri við kröfuhafa gömlu bankanna. Það er afar óheppilegt ef mótun tillagna og ákvörðun um niðurfærslu skulda tefur fyrir eða eykur flækjustig þess ferlis, enda um tvær aðskildar ákvarðanir og aðgerðir að ræða. Þar er því um sitthvorn peninginn að ræða í orðsins fyllstu merkingu.
Skoðun

Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag
Bolli Héðinsson skrifar

„Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum
Eyrún Arnarsdóttir skrifar

Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál
Grímur Atlason skrifar

Í vörn gegn sjálfum sér?
Ólafur Stephensen skrifar

Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Þjóðin stendur með sjúkraliðum
Sandra B. Franks skrifar

Vegið að íslenska lífeyriskerfinu
Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks?
Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Sniðgangan á Rapyd slær öll met
Björn B. Björnsson skrifar

Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka
Birgir Finnsson skrifar

Árið 2023 kemur aldrei aftur
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Trumpistar eru víða
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna
Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar

Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi!
Rakel Ýr Isaksen skrifar

Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð
Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar

Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar
Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar

Samkeppnin tryggir hag neytenda
Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Stóðhryssur ekki moldvörpur
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Við getum gert betur
Einar Bárðarson skrifar

Tími til að notast við réttar tölur
Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar

Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur?
Valur Elli Valsson skrifar

Ábyrg stefna í útlendingamálum
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar

Týndu hermennirnir okkar
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Gerist þetta aftur á morgun?
Ísak Hilmarsson skrifar

Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu?
Helen Ólafsdóttir skrifar

Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar
Jón Daníelsson skrifar