Enski boltinn

Suarez verður klár í leikinn gegn Man. Utd

Suarez er hér nýbúinn að bíta Ivanovic.
Suarez er hér nýbúinn að bíta Ivanovic.
Það styttist í endurkomu Luis Suarez með Liverpool. Hann mun koma úr löngu banni fyrir leikinn gegn Man. Utd í næstu viku.

Suarez var dæmdur í tíu leikja bann fyrir að bíta Branislav Ivanovic, leikmann Chelsea. Suarez hefur mátt spila landsleiki en hefur þess utan lítið spilað.

Man. Utd og Liverpool mætast í deildarbikarnum á miðvikudag og þá mun Suarez klárlega spila með Liverpool enda vantar hann leikæfingu.

"Við höfum skipulagt nokkra leiki fyrir hann á bak við luktar dyr. Svo hefur hann spilað landsleiki. Suarez hefur lagt mikið á sig en það er ekki það sama og að spila leiki," sagði Brendan Rodgers, stjóri Liverpool.

"Hann er búinn að æfa eins og brjálæðingur og leggur mikið aukalega á sig. Hann hefur gert allt til þess að vera í eins góðu formi og mögulegt er þegar hann byrjar að spila aftur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×