Vinirnir þorðu ekki upp í Breiðholt 8. júní 2013 07:00 Ingvar segir að þótt margir krakkar úr hverfinu hafi farið illa hafi langflestir náð góðum árangri í lífinu þótt margir þeirra hafi verið að mestu leyti sjálfala. „Þetta er gott hverfi, en það var meira af krökkum sem áttu við vandamál að stríða og fjölskylduaðstæður voru erfiðar. Það er bara þannig,“ segir hann. Fréttablaðið/GVA
Ingvar Sverrisson er einn þeirra fjölmörgu Íslendinga sem ólust upp í Breiðholtinu. Hann minnist hverfisins með hlýju og segist hvergi annars staðar hafa viljað eyða æsku sinni. Þegar hann óx úr grasi lá leið hans meðal annars í borgarpólitíkina þar sem hann kynntist ástandinu í hverfinu frá fyrstu hendi, frá faglegu sjónarhorni.Skýrslan var „reality check“ Árið 1994 kom út skýrsla um Breiðholtið sem einungis var birt starfsmönnum Reykjavíkurborgar á þeim tíma. Í skýrslunni kom skýrt fram að það væri að stefna í vanda í hverfinu, þar sem önnur og þriðja kynslóð af íbúum sem hefðu lifað á bótum frá ríkinu væri að koma upp. Ingvar var þá á sínum fyrstu starfsárum í borgarbatteríinu. „Ég man vel eftir þessari skýrslu vegna þess að hún var „reality check“ fyrir mig. Þar sagði að við værum að fara að lenda í því sama og aðrar þjóðir að börn alast upp í þessu kerfi við það að það sé bara norm að vera á bótum og það þyrfti að gerast eitthvað í málunum ef við ætluðum að snúa þeirri þróun við,“ segir hann. „Auðvitað var reynt að bregðast við þessu en ég held samt að þetta hafi ræst að einhverju leyti. Þetta var ákveðið vandamál og er enn þann dag í dag.“Þorðu ekki í Breiðholtið Ingvar ólst upp í Fellunum, Vesturberginu og Bökkunum. Yngri bræður hans, Sverrir Þór og Friðþjófur Ingi, fóru í Breiðholtsskóla en Ingvar hélt áfram í Fellaskóla þegar fjölskyldan fluttist í Bakkana. „Það var minn skóli. Þetta var svo flottur hópur, æðislegir krakkar, en vandamálin voru auðvitað til staðar.“ Eftir Fellaskóla lá leið Ingvars í MR. Hann lauk þó stúdentsprófi í Breiðholtinu og færði sig á ný úr miðborginni eftir þriggja ára skólagöngu. „Ég uppgötvaði ekki hvernig ímynd Breiðholts var út á við fyrr en ég fór í MR. Ég var með krökkum úr Vesturbænum og Seltjarnarnesinu í bekk og þau höfðu bara fæst komið upp í Breiðholt vegna þess að þau þorðu ekki. Það sem var heimurinn fyrir mér var staður fyrir þeim þar sem hrækt var á fólk,“ segir hann. Ingvar segir þó að ekki hafi verið um fordóma að ræða hjá bekkjafélögunum í MR. „Þetta var meira svona óttablandin virðing. Þetta voru allt einstaklega góðir krakkar, enda ákvað ég í fyrsta partíinu að safna þeim saman á Hlemmi þar sem ég fór með þau í Tólfuna og í „sightseeing“ í Breiðholtið. Það var mikið fjör.“ Ímynd hverfisins ekki góð En það eru ekki bara menntaskólakrakkar úr Vesturbænum og Seltjarnarnesi sem eru tortryggnir gagnvart Breiðholti. Íbúar hafa löngum haft áhyggjur af ímynd hverfisins út á við, en eins og flestir vita eru fordómar oftast sprottnir upp úr fáfræði og vanþekkingu. Hvernig upplifir Ingvar ímynd síns gamla hverfis? „Ég held að hún sé ekkert sérstaklega góð. Til að segja það hreint út held ég að það helgist meðal annars af því að hér búi svo margir úr minnihlutahópum. En fordómarnir voru líka til staðar áður en þeir komu, ég man til dæmis ekki eftir einum einasta útlendingi sem var með mér í skólanum. Á þeim árum stöfuðu fordómarnir af stéttaskiptingu, ekki hlutfalli innflytjenda. Vandamálin eru auðvitað fyrst og fremst þau að það var verið að setja alla á sama stað.“Margir fallið fyrir eigin hendi Ingvar undirstrikar að fjölmiðlar hafi einnig átt stóran þátt í „gettóvæðingu“ Breiðholtsins. Með langsóttum tengingum við hverfið, undirstrikunum á þjóðerni fólks í fréttum og ítrekun á nafni hverfisins þegar eitthvað neikvætt átti sér stað. Hann er þó meðvitaður um að ekki sé hægt að líta framhjá því að félagslegu vandamálin hafi verið meiri þar en í öðrum hverfum borgarinnar. „Pabbi sýndi mér gamla bekkjarmynd af sér úr 12 ára bekk Breiðagerðisskóla um daginn og benti á að allir á myndinni væru enn á lífi. Þá hugsaði ég með mér að það væru líklega svona fimmtán manns sem ég eyddi dögunum mínum með hérna, á fylleríum, í Fellahelli eða eitthvað hér í kring, sem eru dánir. Og margir fyrir eigin hendi. Margir krakkar héðan hafa farið illa, en langflestir hafa náð góðum árangri í lífinu þótt þeir hafi verið að miklu leyti sjálfala,“ segir hann. „Þetta er gott hverfi, en það var meira af krökkum sem áttu við vandamál að stríða og fjölskylduaðstæður voru erfiðar. Það er bara þannig.“
Fréttaskýringar Mest lesið Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Hvað gerist ef það verður jafnt? Innlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Fleiri fréttir Fjölmiðlanefnd sektar Þórarinn um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega Sjá meira