Nýr leikur frá CCP 21. ágúst 2013 08:38 Hilmar Veigar Pétursson og félagar í CCP kynna leikinn á Gamescom í Köln í dag. Myndir/CCP
Tölvuleikjaframleiðandinn CCP tilkynnir í dag um útgáfu á nýjum tölvuleik EVE: Valkyrie. Leikurinn verður kynntur á stærstu leikjaráðstefnu Evrópu, Gamescom í Köln. EVE: Valkyrie kemur út á næsta ári. Leikurinn byggir á nýrri tækni á sviði sýndarveruleika (e. virtual reality) þar sem spilurum er gefinn kostur á að gerast flugmenn í geimskipum í EVE heiminum. Leikurinn er hraður og óvæginn þar sem spilarar eigast við í skotbardögum. Sýndarveruleikinn sem leikjahönnun EVE: Valkyrie byggir á gerir upplifunina einstaklega raunverulega og þannig úr garði gerða að það er engu líkara en spilari leiksins sé kominn í flugstjórasæti geimskipsins, þar sem hann mætir óvinum sínum og hættum, að því er segir í tilkynningu frá CCP. Myndband úr leiknum má sjá hér að neðan.Fyrsta útgáfa EVE: Valkyrie leit dagsins ljós á EVE Fanfest hátíðinni í Reykjavík í maí síðastliðnum. Í kjölfarið ákvað CCP að þróa hugmyndina áfram og gera nýja útgáfu af EVE-VR til að prufa E3 ráðstefnunni í Los Angeles, stærstu leikjaráðstefnu heims, sem fram fór í júní. „Það sem byrjaði sem ástríða hjá litlum hópi hæfileikaríkra starfsmanna CCP varð að einum umtöluðustu leikjum ársins – og það áður en við tilkynntum um útgáfu hans,“ er haft eftir Hilmari Veigari Péturssyni í tilkynningu frá CCP. „Við erum með metnaðarfull áform fyrir EVE: Valkyrie og ég get ekki beðið eftir að við komum fram með frekari upplýsingar um leikinn þegar líður á árið.“
Mest lesið Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Viðskipti innlent Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira