Með úrskurði frá 21. mars. sl. staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að Sorpa byggðarsamlag hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið samkeppnislög og bæri að greiða 45 milljóna króna sekt.
Til upprifjunar þá fólst brot Sorpu í að veita eigendum sínum og Sorpstöð Suðurlands bs. óeðlilega háa afslætti sem sköðuðu samkeppni. Í grein sem birtist eftir undirritaðan í Fréttablaðinu í janúar sl. var fjallað um ákvörðun Samkeppniseftirlitsins og hverjar hugsanlegar afleiðingar kynnu að verða vegna hennar með vísan til skaðabótaábyrgðar Sorpu. Verður ekki frekar fjallað um þau mál hér og vísast til þeirra skrifa.
Gjaldskrárbreyting Sorpu Í kjölfar ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins ákvað stjórn Sorpu að breyta gjaldskránni og fella niður alla afslætti til allra viðskiptavina, frá og með 15. febrúar sl. Gjaldskrá Sorpu er lögbundin, sem þýðir að Sorpa verður að fylgja lögum þegar hún setur gjaldskrá sína og getur ekki látið annað ráða för við ákvörðun gjaldskrárinnar en lögmæt sjónarmið. Um þessi sjónarmið og lögmæti gjaldskrár fyrir að meðhöndla úrgang er kveðið á um í 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Þar segir að gjaldið sem byggðarsamlag innheimtir skuli aldrei vera hærra en sem nemur þeim kostnaði sem til fellur í sveitarfélaginu við meðhöndlun úrgangsins og tengda starfsemi sem samræmist markmiðum laganna. Ákvörðunarorð eftirlitsins Með þeirri aðgerð sinni að afnema alla afslætti, virðist hins vegar sem Sorpa skilji ekki hvernig hún átti að bregðast við tilmælum Samkeppniseftirlitsins. Þannig beindi Samkeppniseftirlitið, í ákvörðunarorðum sínum, til Sorpu að endurskoða gjaldskrána þannig að viðskiptakjör væru almenn, gagnsæ og hlutlæg og tryggja að kjör og aðrir skilmálar í viðskiptasamningum fyrirtækisins væru í samræmi við 11. gr. samkeppnislaga.
Hvergi í ákvörðunarorðum Samkeppniseftirlitsins segir að afnema skuli alla afslætti eða að bannað sé að veita afslætti. Þvert á móti þá sló Samkeppniseftirlitið því föstu í ákvörðun sinni að gildandi afsláttarfyrirkomulag gagnvart almennum viðskiptavinum væri ekki í andstöðu við samkeppnislög enda grundvölluð á kostnaðarlegum og hlutlægum forsendum. Er því augljóst að afnám allra afslátta til almennra viðskiptavina Sorpu var ekki gert á grundvelli ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins.
Mótsögn Sorpu bs.
Með afnámi allra afslátta til almennra viðskiptavina sinna er Sorpa kominn í mótsögn við sjálfa sig, þar sem hún hélt því fram í rökstuðningi til Samkeppniseftirlitsins að afslættirnir væru veittir á grundvelli kostnaðarlegs hagræðis. Það er að magnviðskipti lækki kostnað. Nú kveður hins vegar við nýjan tón þar sem Sorpa veitir ekki lengur afslætti vegn magnhagræðis. Má því vera ljóst að núverandi gjaldtökur þar sem ekki er tekið tillit til magnhagræðis, endurspegla ekki raunkostnað við meðhöndlunina á úrganginum. Virðist því sem Sorpa haldi áfram ótrauð við að brjóta á rétti viðskiptavina sinna og virðist yfirgangur og óréttlæti byggðarsamlagsins engan endi ætla að taka þar sem gjaldtakan er enn ekki í samræmi við lög.
Hvati Sorpu bs.
Nú kynni einhver að velta fyrir sér hvers vegna Sorpa tók alla afslætti af öllum viðskiptavinum sínum á einu bretti án nokkurra skýringa eða fyrirvara. Sumir kynnu að halda að nú væri jafnvægi náð og eitt gengi yfir alla og allir sáttir. En svo tel ég ekki vera. Ástæðan er einföld. Sorpu bar að greiða 45 milljónir í sekt fyrir misnotkun sína. Á sama tíma er Sorpu óheimilt að skila hagnaði þar sem gjaldtaka við meðhöndlun úrgangs má ekki vera meiri en kostnaðurinn sem af því hlýst. Því má vera ljóst að engir varasjóðir voru til að standa straum af óvæntum útgjöldum líkt og sektin var. Því varð Sorpa með einhverjum hætti að afla sér tekna umfram gjöld auðvitað, til að greiða sektina. Þær tekjur koma nú með ofrukkun á förgunargjöldum við meðhöndlun á úrgangi með afnámi lögmætra og réttmætra afslátta. Má þannig segja að Sorpa hafi, eftir að hafa brotið samkeppnislög og verið refsað fyrir að mismuna viðskiptavinum sínum í áraraðir, farið beinustu leið í að brjóta lög um meðhöndlun úrgangs með afnámi afsláttanna. Til einföldunar mætti segja að brotaþolunum, sem í þessu máli eru viðskiptavinir Sorpu, er nú gert að greiða sektina vegna brotanna sem á þeim voru framin.

Misnotkun Sorpu staðfest
Skoðun

Takk Trump!
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Fíllinn á teikniborði Landsvirkjunar
Soffía Sigurðardóttir skrifar

Tími til að staldra við
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Hvar er fyrirsjánaleikinn, forsætisráðherra?
Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar

25 metrar í Fannborg
Hákon Gunnarsson skrifar

Krossferðir - Íslamófóbía - Palestína
Kristján Þór Sigurðsson skrifar

Gefum heimild fyrir kyrrð og kærleik
Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar

Frumvarp til ólaga
Jón Ásgeir Sigurvinsson skrifar

Hervirki í höfuðborg - Svefngenglar við stjórnvölinn
Örn Sigurðsson skrifar

„Drifkraftur að óöryggi og óvissu“
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Klerkaveldi, trú og stjórnmál
Sigurður Árni Þórðarson skrifar

Stöðvum áætlanir um sjókvíaeldi í Eyjafirði!
Harpa Barkardóttir skrifar

Gamla Reykjavíkurhöfn - Vesturbugt – ákall um nýtt skipulag
Páll Jakob Líndal skrifar

Að elska sjálfan sig – lykill að heilbrigðu starfsumhverfi í leik- og grunnskólum
Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fann málbeinið sitt
Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar

Sex hlutir sem þú vissir ekki um húsnæðisfélög
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Þegar hið óhugsanlega gerist
Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar

Ábyrgð og ábyrgðarleysi
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Þegar óttinn er ekki sannur
Sigurður Árni Reynisson skrifar

Fimm staðreyndir fyrir Gunnþór Ingvason
Arnar Þór Ingólfsson skrifar

Réttlæti byggir ekki á rangfærslum – svar við málflutningi þingflokksformanns Samfylkingar um veiðigjaldafrumvarpið
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Björgun hvala og orðræðan sem máli skiptir
Valgerður Árnadóttir,Stefán Yngvi Pétursson,Rósa Líf Darradóttir,Anahita S. Babaei skrifar

Ferðaleiðsögn í skjóli ábyrgðar – tími til kominn að endurhugsa nálgunina
Guðmundur Björnsson skrifar

Á flandri í klandri
Jens Garðar Helgason skrifar

Átak til að stytta biðlista barna eftir sérfræðiaðstoð
Helga Þórðardóttir skrifar

Hverjir borga leikskólann í Kópavogi?
Örn Arnarson skrifar

Tölvupóstar fjórðu iðnbyltingarinnar
Sigurjón Njarðarson skrifar

„Skömmin þín“
Jokka G. Birnudóttir skrifar

Tökum samtalið
Gunnþór Ingvason skrifar

„Eruð þið sammála lausagöngu katta?“
Sighvatur Björgvinsson skrifar