Búið að selja medalíuna - Silfurdrengir neita sölu Jón Júlíus Karlsson og Kristján Hjálmarsson skrifar 15. október 2013 13:51 Íslenska liðið sem hafnaði í öðru sæti í Peking 2008. Mynd/Vilhelm
Handknattleiksleikmennirnir Sigfús Sigurðsson, Sturla Ásgeirsson og Ingimundur Ingimundarson segjast ekki vera viðriðnir sölu á silfurmedalíu frá Ólympíuleikunum í Kína árið 2008.Á síðu Safnarmiðstöðvarinnar í gær kom fram að silfurmedalía frá Ólympíuleikunum í Kína væri til sölu. Samkvæmt nýjustu fréttum er búið að selja medalíuna. Öll spjót beinast að liðsmönnum íslenska landsliðsins en 14 leikmenn liðsins fengu silfurmedalíu á leikunum. Hvorki Bjarni Fritzson, 15. leikmaður liðsins, né Guðmundur Guðmundsson, þjálfari liðsins, fengu silfurmedalíu.Hlýtur að hafa gilda ástæðu „Ég er ekki að selja medalíuna mína og veit ekki hver er að selja. Þó ég vissi hver væri að selja myndi ég ekki segja það,“ segir Sigfús Sigurðsson, línumaðurinn stóri og sterki. „Hver sem ástæðan er þá hlýtur sá hinn sami að hafa gilda ástæðu fyrir því. Ég sá þetta bara á vefnum og mér brá að sjá þetta en menn hljóta að hafa sínar ástæður fyrir þessu.“ Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, segir um leiðindamál sé að ræða. „Reglurnar eru þannig að það eru einungis leikmenn sem fá medalíu,“ segir Guðmundur. Er bannað að selja medalíuna? „Þetta er náttúrulega bara eign manna, þeir sem eignast hana eiga hana. Við höfum engan ráðstöfunarrétt yfir henni. Við munum gera okkar besta til þess að þessi medalía fari ekki á flakk.“Sigfús Sigurðsson er einn af silfurdrengjunum.Mynd/VilhelmFáránlegt að selja svona grip Vísir ræddi við nokkra leikmenn og spurði þá hvar þeirra medalía væri niðurkominn. Ekki náðist í Loga Geirsson við vinnslu þessarar fréttar. Silfurmedalía hans er á öruggum stað í verðlaunaskáp hjá FH í Hafnarfirði. Sturla Ásgeirsson, leikmaður ÍR, kom að fjöllum þegar Vísir náði tali af honum. „Nei, það er ég svo sannarlega ekki að gera. Ég rak bara augun í þetta en hef ekki grænan grun um hver er að selja medalíuna sína," segir Sturla Ásgeirsson, hornamaðurinn knái. „Ég veit ekki nema þetta sé eitthvað grín. Ég get ekki séð hvaða ástæðu menn hafa til að selja einhverja veðlaunamedalíu. Fæstir sem unnu til verðlaunanna hafa tækifæri til að vinna til þeirra aftur," segir Sturla. „Í mínum huga er fáránlegt að selja svona grip. Það hvarflar að minnsta kosti ekki að mér."Ingimundur Ingimundarson og Sturla Ásgeirsson.Mynd/ErnirDiddi geymir sína á öruggum stað Varnarmaðurinn Ingimundur Ingimundarson tekur í svipaðan streng. „Silfurmedalían mín er á öruggum stað. Ég er ekki að selja og það hefur aldrei hvarflað að mér,“ segir Ingimundur eða Diddi eins og hann er jafnan kallaður. „Þetta er leiðinlegt mál ef rétt reynist. Ég trúi því eiginlega varla að einhver okkar sé að selja silfurmedalíuna sína.“ Í hádegisfréttum Bylgjunnar kom fram að HSÍ ætlaði að gera allt sem það getur til að koma í veg fyrir að silfurmedalían fari á flakk. Ingimundur telur að HSÍ hafi ekki efni á því að kaupa medalínuna. „Ef að HSÍ hefur varla efni á því að senda landsliðið á stórmót þá hafa þeir svo sannarlega ekki efni á að borga tvær milljónir fyrir silfurmedalíu.“
Tengdar fréttir Ekki ólympíuandinn að selja silfurverðlaunin Forseta ÍSÍ finnst salan sorgleg og sambandið mun skoða málið. 15. október 2013 07:00 Ólympíusilfur íslenska handboltalandsliðsins til sölu Ekki gefið upp hver verðlaunahafanna vill selja dýrgripinn. 14. október 2013 21:45 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða til tíðinda Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Sjá meira
Ekki ólympíuandinn að selja silfurverðlaunin Forseta ÍSÍ finnst salan sorgleg og sambandið mun skoða málið. 15. október 2013 07:00
Ólympíusilfur íslenska handboltalandsliðsins til sölu Ekki gefið upp hver verðlaunahafanna vill selja dýrgripinn. 14. október 2013 21:45