Áramótaheit fræga fólksins: Fer mjúkum höndum um bjölluna Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 30. desember 2013 21:00 "
Ég strengi aldrei áramótaheit; að minnsta kosti ekki í neinni alvöru. En nýlega var mér sagt að gerð hafi verið könnun á gildi slíkra heitstrenginga, eins og auðvitað á öllu öðru og niðurstaðan væri sú að ef maður skrifaði niður áramótaheitin sín, þá væri líklegra að maður stæði við þau. Fyrst svo er, hvað má þá segja um áramótaheit sem birtast á Visir.is?!" segir Einar K. Guðfinnson, forseti Alþingis."Það væri auðvitað skynsamlegt að heita því að standa sig almennt vel, taka upp heilbrigðari lífsstíl, vera betri heimilisfaðir, láta af alls konar ósiðum og lofa því að verða nýr og betri maður. Þetta væri auðvitað óskaplega metnaðarfullt og hver veit nema maður springi á limminu, svona hér um bil í beinni útsendingu.En svo rifjaðist upp fyrir mér að um daginn hafði samband við mig eldri maður, sem kvartaði undan því hve ég væri harðhentur á bjöllunni í þinginu, þegar ég reyndi að koma skikk á umræður á Alþingi. Hann sagðist hrökkva upp úr stól sínum þegar hann horfði á sjónvarpsútsendingar frá Alþingi þegar ég reiddi upp höndina til þess að slá í bjölluna. Bað hann mig guðs blessaðan að vera aðeins mjúkhentari, enda væri heilsa sín og eflaust margra annarra í veði.Því ætla ég hér og nú að vinna það áramótaheit að fara mjúkum höndum um bjölluna; dangla bara létt í hana en slá því aðeins af afli þegar allt annað þryti."
Mest lesið Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Lífið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fleiri fréttir Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Sjá meira