Johnson setti 29 stig í einum leikhluta og jafnaði met | Myndband Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. desember 2013 08:52 LeBron James og Dwyane Wade kynntir til leiks í nótt. Nordicphotos/Getty
LeBron James virtist hafa meitt sig á ökkla og yfirgaf völlinn í þriðja leikhluta. Kappinn sneri aftur í fjórða leikhluta og lauk leik með 30 stig í sigri Miami Heat á Utah Jazz. Meistarar Miami unnu 117-94 sigur og hafa unnið fjóra af síðustu fimm. Illa gengur hjá strákunum úr mormónaborginni sem hafa tapað sex af síðustu átta leikjum. Joe Johnson var í banastuði og setti 37 stig í 130-94 sigri Brooklyn Nets á Philadelphia 76ers. Johnson setti niður tíu þriggja stiga skot sem er persónulegt met. Johnson fór hamförum í þriðja leikhluta þegar hann setti 29 stig þar af átta þriggja stiga körfur. Jafnaði hann met deildarninar í þriggja stiga körfum í einum leikhluta. Sýninguna hjá Johnson má sjá hér að neðan. Leikur Los Angeles Lakers hrundi í þriðja leikhluta í 114-100 tapi gegn Atlanta Hawks. Haukarnir unnu leikhlutann 35-19 og lögðu grunninn að sigrinum. Um fimmta leik Kobe Bryant eftir meiðslin var að ræða. Kappinn hitti illa og tapaði boltanum fimm sinnum. Stigin urðu átta og stoðsendingarnar sex.Úrslit næturinnarIndiana Pacers 96-101 Detroit PistonsAtlanta Hawks 114-100 Los Angeles LakersBoston Celtics 101-97 Minnesota TimberwolvesBrooklyn Nets 130-94 Philadelphia 76ersMiami Heat 117-94 Utah JazzNew York Knicks 101-102 Washington WizardsChicago Bulls 82-83 Orlando MagicLos Angeles Clippers 115-92 San Antonio Spurs
NBA Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Hlustaði ekki á liðið og baðst afsökunar Formúla 1 Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Mikil óvissa um þátttöku Alberts í mikilvægum landsleikjum Fótbolti „Áttum mun meira skilið úr þessum leik“ Fótbolti Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Enski boltinn Fleiri fréttir Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Sjá meira