Hollywood syrgir Paul Walker 1. desember 2013 10:11 Walker lést í skelfilegu bílslysi í nótt, eins og sést á þessari mynd er bíllinn illa farinn.
Fast and the Furious-stjarnan Paul Walker lést í skelfilegu bílslysi í nótt fertugur að aldri. Slysið varð í borginni Santa Clarita í Kaliforníu. Sportbíllinn skall á tré og kviknaði í honum í kjölfarið. Walker og bílstjóri Porche bifreiðar létust báðir samstundis en þeir voru á leið á góðgerðarsamkomu til styrktar íbúum Filippseyja vegna fellibylsins sem gekk þar yfir nýverið. Paul Walker var einn af vinsælustu leikurunum í Hollywood, þá sérstaklega á meðal unglingsstúlkna, en hann hefur notið gríðarlegra vinsælda fyrir leik sinn í Fast and the Furious-myndunum, þar sem hann leikur lögreglumanninn Brian O'Conner. Fyrsta myndin kom út árið 2001 og er sjöunda myndin í framleiðslu og var stefnt á að frumsýna hana í júlí á næsta ári. Tökur standa enn yfir, og er því alveg óljóst hvort að frumsýningunni verður seinkað. Til stendur að frumsýna hryllingsmynd sem hann lék aðalhlutverkið í nýverið nú í desember. Þá hefur Walker leikið í myndum á borð við Into the Blue, She's All That og Takers við góðar undirtektir. Fjölmargir leikarar, og aðrir sem tengjast kvikmyndaiðnaðinum í Hollywood, hafa minnst Walker á samskiptamiðlunum í nótt, og í morgun. Þar á meðal meðleikari hans í Fast and the Furious-myndunum Vin Diesel. Á Instagram-síðu sinni segist hann vera orðlaus yfir dauða vinar síns. Nýr engill sé nú farinn upp til himna. Þá hafa margir aðdáendur hans sett inn minningarorð um leikarann á Facebook-síðu og Instagram-síðu hans.Paul Walker
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira