Leikjavísir

Íslenskur spurningaleikur kynntur í New York

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
myndir/ASTRSK PR
Útgáfuhóf var haldið í New York í gær fyrir QuizUp spurningaleikinn sem kemur út á morgun. Leikurinn verður stærsti spurningaleikur í heimi með á annað hundruð þúsund spurningar í tæplega 300 flokkum. Það er íslenska tölvuleikjafyrirtækið Plain Vanilla sem þróaði leikinn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Þorsteinn B. Friðriksson, framkvæmdastjóri og stofnandi Plain Vanilla var viðstaddur útgáfuhófið ásamt hópi íslenskra og erlendra starfsmanna. Fullt var út úr dyrum í veislunni en þangað voru meðal annars mættir blaðamenn frá viðskiptamiðlunum Business Insider og Forbes auk fjárfesta og helstu áhrifavalda í tæknibransanum í New York.

Þorsteinn hélt stutta tölu þar sem hann kynnti QuizUp og bauð veislugestum að spila leikinn en stöðunni var varpað upp á skjá og gestirnir gátu unnið til verðlauna með því að sigra aðra gesti í leiknum.

Svona lítur leikurinn út.
Neal Ostrov, markaðsstjóri Plain Vanilla, segir leiksins beðið með mikilli eftirvæntingu. Hann segir að hægt verði að spila leikinn á snjallsíma og spjaldtölvu.

„QuizUp er einn fyrsti snjallsíma- og spjaldtölvuleikurinn sem er með sinn eigin samfélagsvef á bakvið leikinn,“ segir Ostrov. Hann segir að  markmiðið sé að fólk kynnist og vináttubönd styrkist í gegnum sameiginleg áhugamál sem fólk keppist við að svara spurningum um. Jafnvel gæti fólk kynnst hinum eina rétta eða hinni einu réttu eftir að hafa att kappi í leiknum.

Ostrov segist vonast til þess að leikurinn falli í kramið hjá Íslendingum sem hafa, sem kunnugt er, mikinn áhuga á spurningaleikjum en meðal vinsælustu sjónvarpsþátta hér á landi eru spurningakeppnir af ýmsu tagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×