Vilja efla samstarf Íslands og Færeyja Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 11. október 2013 23:29 Kaj Leo Johannesen, lögmaður Færeyinga, og Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra ræddu Hoyvíkur fríverslunarsamninginn Aðsend mynd „
Engin þjóð stendur Íslendingum nær en Færeyingar,“ sagði Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, á fundi sem hann átti fyrr í dag með Kaj Leo Johannesen lögmanni Færeyinga. Fundurinn var um framkvæmd Hoyvíkur fríverslunarsamningsins en markmið samningsins er að koma á fót sameiginlegu efnahagssvæði á yfirráðasvæðum Íslands og Færeyja. Á fundi sínum ræddu ráðherrarnir viðskipti ríkjanna almennt, hvernig megi nýta betur þá möguleika sem samningurinn býður upp og greiða þannig fyrir frekari viðskiptum. Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu skýrði utanríkisráðherra frá því að ný ríkisstjórn hefði markað mjög skýra stefnu í vestnorrænu málunum og væri vilji til að efla enn frekar hið miklvæga samstarf sem væri við grannsvæðin, Færeyjar og Grænland. Samskiptin væru þegar náin á ýmsum sviðum en stefnt væri að að auka þau enn. Ráðherrarnir ræddu í því samhengi hvernig efla mætti samstarf Íslands og Færeyja um sameiginlega hagsmuni í sjávarútvegi. Árið 2011 voru fluttar út vörur frá Íslandi til Færeyja fyrir 3,8 milljarða króna en árið 2012 fyrir 6,8 milljarða. Meginskýringarnar eru aukning í útflutningi á uppsjávarfiski og ýmsum iðnaðarvörum, auk þess sem útflutningur jókst á álafurðum, fiskinetum, línum og köðlum. Innflutningur frá Færeyjum til Íslands nam tæpum 1,4 milljarð króna árið 2011 en dróst lítillega saman árið 2012 eða um eina milljón.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira