Innlent

Ætla að fjölga leiguíbúðum mikið á næstunni

Þórhildur Þorkeldóttir skrifar
Íbúðabyggingar eru að taka við sér eftir algjört frost. Þetta segir Dagur B Eggertsson, formaður Borgarráðs. Mörg stór verkefni koma til framkvæmda á næstunni þar sem áhersla verður lögð á uppbyggingu leiguíbúða og hótela.

Framkvæmdir hefjast á yfir 60 uppbyggingarreitum og þróunarsvæðum í Reykjavík á næstu mánuðum og árum. Heildarmynd af framtíðaruppbyggingu í Reykjavík var kynnt á kynningarfundi í Ráðhúsinu í dag með teikningum, myndböndum og þrívíddartækni, og var sjón sögu ríkari. 

Húsnæðisvandinn hefur verið mikið í umræðunni síðustu mánuði og segir Dagur B. Eggertsson, formaður Borgarráðs, að það sé forgangsatriði að fjölga leiguíbúðum talsvert á næstu árum.

„Íbúðabyggingar eru að  taka við sér eftir algjört forst. Það eru töluvert mörg stór byggingaverkefni þar sem áhersla er lögð á leiguíbúðir að fara af stað og það erum við mjög ánægð með. Við viljum raunar fjölga leiguíbúðum mjög mikið í Reykjavík á næstu árum,“ segir hann.

Dagur talaði einnig um fyrirhugaða uppbyggingu á Brynjureitnum, en þar hefur félagið Þingvangur í hyggju að bygga Félagsheimili Reykjavíkurborgar. Húsnæðið yrði hugsað sem samkomustaður með veitingahúsi, skrifstofum og 800 manna tónleikasal. Þar að auki vill Þingvangur byggja litlar íbúðir, 30-40 fermetra að stærð fyrir ofan. Mikil eftirspurn er eftir slíkum íbúðum í miðbænum en þær hafa hingað til verið af skornum skammti eða eingöngu ætaðar námsmönnum.

„Þetta er einn af þessum spennandi miðborgarreitum. Þarna verða þróaðar smáíbúðir og það sem okkur finnst sérstaklega áhugavert er að við erum að gera ráð fyrir nýjum tónleikastað fyrir allt að 800 gesti sem yrði á jarðhæð á þessum reit. Það er auðvitað eitthvað sem hefur verið kallað mjög mikið eftir.“

Er verið að svara kalli fólks sem er óánægt með brotthvarf Nasa og Faktorý?

„Já, það má algjörlega segja það. Faktorý er þarna á næsta reit við en er auðvitað töluvert minni staður. Hugmyndirnar ganga út á að þetta verði sveigjanlegur tónleikastaður þannig hann geti ýmist verið fyrir 150 - 200 manns og svo fyrir 600 - 800 manns,“ segir Dagur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×