Erfðabreyttar lífverur í íslenskri búfjárrækt Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 3. október 2013 17:10 Talsvert af erfðabreyttu fóðri er flutt inn til Íslands til notkunar í íslenskri búfjárrækt. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Talsvert af erfðabreyttu fóðri er flutt inn til Íslands til notkunar í íslenskri búfjárrækt. Kjötafurðir, egg og mjólkurafurðir eru framleiddar af búfé sem fóðrað er af erfðabreyttu fóðri að einhverju leyti. Á mánudag verður haldin ráðstefna um erfðabreyttar lífverur undir yfirskriftinni Er erfðabreytt framleiðsla sjálfbær? Einkum verður fjallað um reynslu Bandaríkjanna af notkun erfðatækni í matvælaframleiðslu, vísindarannsóknir á erfðabreyttum lífverum og hvort aðrar leiðir séu vænlegri til árangurs m.a. í íslenskri búfjárrækt. Kynningarátak um erfðabreyttar lífverur stendur að ráðstefnunni og er Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Túns einn skipuleggjenda.Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri TúnsAðsend mynd„Niðurstöður rannsókna benda til þess að erfðatækni sé áhættusöm og ófyrirséð í afleiðingum sínum. Með kynningarátakinu og ráðstefnunni viljum við koma þessum upplýsingum á framfæri og benda á aðra valkosti. Í öðru lagi hefur átakið barist fyrir því að allar erfðabreyttar vörur séu merktar og það markmið hefur nú náðst að nokkru leyti. En neytendur víða um heim eru farnir að gera kröfur um að afurðir búfjár sem alið er á erfðabreyttu fóðri séu líka merktar og það gæti styrkt íslenska matvælaframleiðendur ekki síst fyrir útflutning ef rétt er á haldið. Í þriðja lagi hefur kynningarátakið varað við sleppingu erfðabreyttra plantna, þ.e. ræktun þeirra utandyra, í ljósi þeirrar áhættu og óvissu sem rannsóknir sýna að það geti haft í för með sér," segir Gunnar. Dæmi um erfðabreyttar plöntur eru HT-plöntur sem er búið að erfðabreyta þannig að þær þola ákveðið illgresiseitur. Annað dæmi er BT-plöntur en þá er búið að setja skordýraeitur í frumur plöntunnar þannig að skordýr sem nagar í plöntuna drepst.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira