Krefjast að fallið verði frá hækkun skrásetningagjalda Jón Júlíus Karlsson skrifar 4. október 2013 15:17 Röskva mótmælir harðlega hækkun skrásetningagjalda við Háskóla Íslands.
Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, krefst þess að fallið verði frá fyrirhugaðri 15.000 kr.- hækkun á skrásetningargjaldi við Háskóla Íslands. Röskva telur að verði hækkunin að veruleika munu nemendur þurfa að sætta sig við aðra hækkun skólagjalda á tveimur árum. „Á síðastliðnum tveimur árum hefur skrásetningargjaldið, sem er ætlað að mæta þeim raunkostnaði sem felst í innritun nema við skólann, hækkað um 30.000 kr. Það er 45% hækkun,“ segir í tilkynningu frá Rösvku. Röskva mótmælir einnig niðurskurði á fjárveitingu til Háskóla Íslands en í fjárlagafrumvarpi ársins 2014. HÍ þarf að mæta niðurskurði sjötta árið í röð sem er óásættanlegt að mati Röskvu.Ályktun frá stjórn Röskvu:Röskva, samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, lýsir yfir þungum áhyggjum vegna niðurskurðar á fjárveitingu til Háskóla Íslands sem fjárlagafrumvarp ársins 2014 gerir ráð fyrir og mótmælir niðurskurðinum harðlega. Nú er ljóst að Háskóli Íslands þarf að mæta niðurskurði sjötta árið í röð, sem er óásættanlegt. Röskva telur að afleiðing þess verði óumflýjanlega sú að skertar fjárveitingar til skólans muni bitna verulega á gæðum náms við skólann.Þá krefst Röskva þess að fallið verði frá fyrirhugaðri 15.000 kr. hækkun á skrásetningargjaldi. Verði hækkunin að veruleika munu nemendur þurfa að sætta sig við aðra hækkun skólagjalda á tveimur árum. Á síðastliðnum tveimur árum hefur skrásetningargjaldið, sem er ætlað að mæta þeim raunkostnaði sem felst í innritun nema við skólann, hækkað um 30.000 kr. Það er 45% hækkun.Hækkun skrásetningargjalda er augljóslega ætlað að koma til móts við skert fjárframlög ríksins til Háskóla Íslands. Tekjurnar sem fást af hækkuninni munu auk þess skila litlu til háskólans, þar sem framlag ríkissjóð til skólans lækkar til móts við þessa upphæð.Með hækkuninni er heimildin til gjaldtöku af nemendum í formi skrásetningargjalda í raun nýtt sem almenn tekjuöflun fyrir Háskóla Íslands. Með því gera stjórnvöld nemendum að standa straum af rekstrarkostnaði háskólans, undir því falska flaggi að um skrásetningargjald sé að ræða.Röskva er alfarið móttfallin skólagjöldum, samkvæmt meginstefnu félagsins um jafnrétti allra til náms. Hækkun skrásetningargjalda í annað sinn á tveimur árum setur vafasamt fordæmi. Hækkunin saumar harðlega að stúdentum sem nú þegar hafa orðið fyrir barðinu á niðurskurðarhníf stjórnvalda. Stjórn Röskvu
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira