Þjóðverjar töpuðu aftur og Bosníumenn risu upp frá dauðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. september 2013 14:37 Mynd/AFP
Úkraína er búið að vinna þrjá fyrstu leiki sína á Evrópumótinu í körfubolta eftir fimm stiga sigur á Þýskalandi í dag, 88-83. Bosníumenn unnu á sama tíma sex stiga sigur á Svartfjallalandi, 76-70, eftir ótrúlega endurkomu í lokin þar sem liðið vann upp tólf stiga mun í fjórða leikhlutanum.Þjóðverjar komu mörgum á óvart með því að vinna Frakka í fyrsta leik en hafa síðan tapað tveimur í röð, fyrst fyrir Belgíu í framlengingu í gær og svo á móti Úkraínu í dag. Úkraínumenn voru níu stigum yfir í hálfleik, 39-30, en Þjóðverjar komu til baka í seinni hálfleik og náðu að komast yfir í 74-73 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Úkraínska liðið fór þá aftur í gang og náði að landa sigrinum í lokin. Bakvarðarparið Sergii Gladyr og Eugene Jeter voru með 44 stig saman fyrir Úkraínu, Gladyr skoraði 25 stig (fimm þristar) en Jeter var með 19 stig og 6 stoðsendingar. Heiko Schaffartzik var með 22 stig og 11 stoðsendingar fyrir þýska liðið og Robin Benzing skoraði 18 stig.Bosníumenn fögnuðu sínum fyrsta sigri á mótinu eftir að unnu Svartfellinga 76-70. bosníska liðið var tólf stigum undir í upphafi fjórða leikhlutans, 49-61, en vann síðustu níu mínútu leiksins 27-9. Mirza Teletovic var atkvæðamestur hjá Bosníu með 18 stig og 11 fráköst en Nemanja Gordic skoraði 17 stig. Bojan Dubljevic skoraði mest fyrir Svartfjallaland eða 16 stig en Tyrese Rice var með 13 stig. Þetta er annar leikurinn í röð sem Svartfjallaland missir frá sér í lokin en það gerðist einnig í eins stigs tapi á móti Lettland í gær.
Körfubolti Mest lesið Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Langar að taka pásu frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Sjá meira