Viðskipti innlent

Atvinnuleysi minnkar um 1,3 prósentustig milli ára

Lovísa Eiríksdóttir skrifar
Atvinnuleysi mældist 3,1 prósent í júlí.
Atvinnuleysi mældist 3,1 prósent í júlí.
Atvinnuleysi hefur dregist saman um 1,3 prósentustig frá því í júlí á síðasta ári og mældist nú 3,1 prósent í júlí síðastliðnum, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Á sama tíma í fyrra var mældist atvinnuleysi 4,4 prósent.

Að jafnaði voru 192.400 manns á vinnumarkaði í júlí, en af þeim voru 186.400 starfandi og 5.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuleysi í júlí 2013 var 3,6 prósent á meðal karla miðað við 5,8 prósent í júlí 2012 og meðal kvenna var það 2,6 prósent miðað við 2,9 prósent í júlí 2012.

Atvinnuþátttaka mældist 85,2 prósent  og hlutfall starfandi 82,6 prósent.

Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, eða höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu sem launþegar eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða.

Einstaklingar sem eru ekki í vinnu en eru í námi flokkast atvinnulausir ef þeir uppfylla skilyrðin hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×