"Hann reyndist mér vel á erfiðum tímum" Ellý Ármanns skrifar 5. júní 2013 16:45
Kolbrún Björnsdóttir og Þórunn Erna Clausen, vinkonur og samstarfskonur Hermanns Gunnarssonar sem féll frá í gær aðeins 66 ára að aldri, gáfu sér tíma til að rifja upp góðar stundir sem þær fengu að upplifa með Hemma. „Kolbeinn" og Hemmi. Einlægari manni hef ég aldrei kynnst „Hemmi var ljúfastur allra ljúflinga. Einlægari manni hef ég aldrei kynnst," segir Kolbrún Björnsdóttir útvarpskona og heldur áfram: „Og hann var svo óskaplega næmur á líðan fólks og átti auðvelt með að ná til allra, bæði í gleði og sorg."Alger stríðnispúki„En hann var líka alger stríðnispúki og mjög kaldhæðinn. Hann gat til dæmis með engu móti kallað samstarfsfólk sitt þeirra nöfnum. Allir fengu nýtt nafn frá Hemma. Ég var Kolbeinn. En það misstu margir mikið við fráfall hans. Hemmi gaf svo mikið af sér og til allra. Mínar hugsanir eru hjá fjölskyldu hans og fóstru hans í Dýrafirði og votta ég þeim mína dýpstu samúð." Eiginmaður Þórunnar, tónlistarmaðurinn Sigurjón Brink, sem er betur þekktur sem Sjonni, varð bráðkvaddur að heimili sínu í Garðabæ í janúar árið 2011. Hjartahlýr og gefandi „Hann elsku Hemmi var svo hjartahlýr og gefandi. Það er mér innilegur heiður að hafa fengið að kynnast honum. Ég man svo vel daginn sem ég hitti hann fyrst sem mjög feiminn unglingur og kom fram sem dansari og í viðtal í þáttinn hans „Á Tali", en pabbi minn og tvíburabróðir hans voru gestir þáttarins. Hann náði auðvitað að sprengja mig úr hlátri og eftir það var ég nú eitthvað rólegri fyrir viðtalið," segir Þórunn Erna Clausen leikkona þegar við ræðum um hennar samskipti við Hemma.Hann átti mikið af vinum „Hann var einnig vinnufélagi systur minnar til margra ára og mannsins míns heitins, og er ég því svo lánsöm að hafa fengið að kynnast honum betur seinna. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að hann virtist alltaf hafa nægan tíma til að tala við mann og gefa af sér. Hann reyndist mér vel á erfiðum tímum og leið mér alltaf örlítið betur eftir spjall við Hemma. Hann hafði endalausa trú á mér og studdi mig á sinn ljúfa hátt og alltaf kvaddi hann með innilegu faðmlagi og talaði svo vel um fjölskyldu mína og ástvini. Hann átti mikið af vinum og snerti líf svo ótrúlega margra."Einstakur húmoristi „Hann var íþróttamaður af Guðs náð, það eru ekki margir sem fæðast með slíka náðargjöf á íþróttasviðinu eins og hann og svo hafði hann einnig þá náðargjöf að geta fyllt líf annarra með ljósi og sýnt öðrum samúð og samkennd. Hann var einstakur húmoristi og hláturinn hans verður okkur öllum ógleymanlegur. Hann skilur svo mikið eftir sig og náði að koma svo miklu frá sér, en það er sárt að horfa á eftir honum svona allt of snemma. Ég á eftir að sakna þess mikið að smitast af hlátri hans og einlægni og langar að votta nánustu aðstandendum hans, fjölskyldu og vinum innilega samúð mína. Minning hans mun lifa í hjörtum þjóðarinnar um alla tíð," segir Þórunn.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Lífið Fleiri fréttir Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Sjá meira