Heiða söngkona orðin flugfreyja Ellý Ármanns skrifar 31. maí 2013 19:00
Heiða Ólafsdóttir söng- og leikkona með meiru er byrjuð að vinna sem flugfreyja hjá Icelandair. Hún var ráðin sem sumarstarfsmaður af 1400 umsækjendum. Ekki nóg með að hún líti vel út í flugfreyjubúningnum heldur er hún að fíla starfið í tætlur. Heiða er fædd í þetta starf það er greinilegt. Sumarstarfsmaður „Ég er sumarstarfsmaður hjá Icelandair, sem sagt júní, júlí og ágúst. Þau auglýstu í nóvember, 1400 manns sóttu um og svo tóku við próf og niðurskurðir og svo kom í ljós í febrúar eftir lokaniðurskurð að ég var ein af þeim sem fékk ráðningu. Ég fór svo á 7 vikna námskeið núna í vor þar sem ég lærði ótrúlega mikið hjá frábærum kennurum og kynntist æðislegu fólki í bekknum mínum," segir Heiða.Ánægð í háloftunumHvernig líst þér á nýja starfið? „Mér líst alveg rosalega vel á nýja starfið, finnst þetta mjög skemmtilegt og hlakka strax til að fljúga meira," svarar hún nýlent frá Frankfurt. „Ég sé strax að þetta er sko algjörlega starf fyrir mig og sem hentar mér. Þannig að ég er rosalega spennt fyrir sumrinu og spennt fyrir því að láta farþegum Icelandair líða sem best um borð," segir þessi hæfileikaríka söngkona.Ætlar að syngja meira Hvað með tónlistar- og leiklistarferilinn? „Planið í tónlistinni er að fara að flytja mína eigin tónlist. Nú ætla ég að klára milljón laga og textahugmyndir eftir mig. Ég finn mikla þörf til þess að syngja eitthvað sem kemur beint frá mínu hjarta."Heiða lenti í 2. sæti í Idolinu sælla minninga árið 2005 og sama ár gaf hún út sína fyrstu sólóplötu hjá Senu. Hún lærði leiklist í New York og útskrifaðist árið 2009. Undanfarin ár hefur Heiða starfað mikið í söngleikjum eins og Buddy Holly í Austurbæ, Bjart með Köflum og Vesalingunum í Þjóðleikhúsinu og svo starfar hún sem útvarpskona á Rás 2 um helgar líka og mun halda því áfram með flugfreyjustarfinu.
Mest lesið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Fleiri fréttir Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“