Þetta er mikill heiður 29. maí 2013 11:08 Ólafur fagnar sigri í Meistaradeildinni með Ciudad Real. mynd/vilhelm
Eins og kom fram um daginn þá var Ólafur Stefánsson valinn í úrvalslið Meistaradeildarinnar frá upphafi. Keppnin er 20 ára gömul og Ólafur þykir hafa skarað fram úr í stöðu hægri skyttu. Ólafur hefur fjórum sinnum orðið Meistaradeildarmeistari. Hann vann keppnina með Magdeburg og Ciudad Real. "Þetta er mikill heiður fyrir mig því við erum að tala um langan tíma eða heil 20 ár. Þetta er ekki eins og að vera valinn maður leiksins heldur er aðeins pláss fyrir einn mann þarna á löngum tíma," segir Ólafur í samtali við heimasíðu Meistaradeildarinnar. "Það eru margir góðir leikmenn sem koma til greina. Menn eins og Urdangarin, Laszlo Nagy og Kim Andersson. Ég reyni að vera ánægður og njóta þessa heiðurs." Ólafur segir í viðtalinu að fyrsti Meistaradeildartitillinn með Magdeburg hafi verið afar ánægjulegur. "Sá titill kom á óvart. Við unnum keppnina nánast fyrir slysni. Við unnum vel fyrir þessu en þetta var sérstakt því við komum á óvart." Ólafur segist halda með Kiel í úrslitahelginni sem er um næstu helgi enda eru þrír Íslendingar í liðinu. Hann mun ekki geta tekið sjálfur á móti verðlaununum sínum en faðir hans, Stefán Eggertsson, mun veita þeim viðtöku þar sem Ólafur er enn að spila í Katar. Lesa má viðtalið í heild sinni hér.
Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Sjá meira