Lofa að bæta kjör verkamanna í Bangladess Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 15. maí 2013 10:34 Níu hæða verksmiðja hrundi til grunna í Dakka í Bangladess. Yfir þúsund manns létust. Mynd/AFP
Nokkrir vestrænir tískurisar hafa skrifað undir sérstakan samning til að tryggja öryggi starfsmanna í fatafyrirtækjum í Bangladess. Meðal þeirra eru Zara, Benetton, Primark og H&M. Bandarísku stórfyrirtækin Sears, Gap og Wall Mart ætla ekki að skrifa undir samninginn, en frestur til þess rennur út í dag. Þetta kemur fram á vef BBC. Þrjár vikur eru síðan níu hæða fataverksmiðja í höfuðborginni Dakka hrundi til grunna með þeim afleiðingum að yfir þúsund manns létust. Margra er enn saknað. Í kjölfarið hefur hundruðum sambærilegra verksmiðja verið lokað af yfirvöldum vegna mikillar ólgu sem gripið hefur um sig meðal verkamanna. Fimm þúsund króna mánaðarlaun Atburðirnir hafa vakið mikla athygli á slæmum aðstæðum í verksmiðjum í Bangladess þar sem fjölmargir verslunarrisar láta framleiða vörur sínar. Útflutningur á vefnaðarvöru í Bangladess er sá næst stærsti í heiminum á eftir Kína og eru verkamenn í iðnaðinum yfir fjórar milljónir talsins. Verkamennirnir hafa hingað til verið nánast réttlausir, stéttarfélög eru engin og laun þeirra sem samsvarar 5.000 íslenskum krónum á mánuði. Úrbótum lofað Yfirvöld hafa lofað úrbótum og er samkomulagið skref í þá átt. Með því verða brunavarnir bættar og öryggisráðstafanir gerðar til að ganga úr skugga um að ekki verði fleiri stórslys í verksmiðjunum. Fyrirtæki sem skrifað hafa undir öryggissamninginn munu bera kostað á úrbótunum.
Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Innlent Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Innlent Fleiri fréttir Fjöldi loftárása á orkuver víðsvegar um Úkraínu Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn „Við búum í fasísku ríki“ Segjast hafa skotið á flugmóðurskip eftir loftárásir Þarf að greiða fyrrverandi 137 milljarða í kjölfar framhjáhalds Ólíklegt að Trump fari í fangelsi Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Bakhjarlar Úkraínu leyfa árásir í Rússlandi Heimilar notkun vopna frá Bandaríkjunum á rússneska grund Trump sakfelldur fyrir skjalafals í þagnargreiðslumáli Veita katalónskum aðskilnaðarsinnum sakaruppgjöf Stígur ekki til hliðar vegna umdeildra fána Gæsir og steggir að buga bæjaryfirvöld sem banna nekt og typpabúninga Svörtum vísað frá borði þegar kvartað var undan líkamslykt Ísraelsmenn taka yfir landamærin að Egyptalandi Flugvélin féll um 54 metra á fimm sekúndum Kviðdómendur leggjast undir feld í dag Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar Útnefna Biden rafrænt til að koma honum örugglega á kjörseðilinn Fær ekki að bjóða sig fram fyrir Verkamannaflokkinn Þingmeirihluti ANC í hættu í Suður-Afríku Íbúar varaðir við rusl- og skítabelgjum frá Norður-Kóreu Segja árásir og aðgerðir Ísrael enn innan „rauðu línanna“ De Niro kallaði Trump skrímsli fyrir utan dómshúsið „Við höfum ekkert“ Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Biðst afsökunar á ummælum um „faggaskap“ Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Pólverjar víggirða landamærin í austri Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins Sjá meira
Yfirmaður ísraelsku leyniþjónustunnar sagður hafa hótað saksóknara Alþjóðasakamáladómstólsins