Sverre skoraði en Grosswallstadt tapaði - auðvelt hjá Ljónunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2013 20:01 Sverre Andreas Jakobsson Mynd/HSÍ
Sverre Andreas Jakobsson og félagar í Grosswallstadt töpuðu gríðarlega mikilvægum leik á heimavelli á móti TV 1893 Neuhausen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en Grosswallstadt þurfti nauðsynlega á báðum stigunum að halda í baráttunni fyrir lífi sínu í deildinni. Rúnar Kárason var með tvö mörk og þrjár stoðsendingar og Sverre Andre Jakobsson skoraði eitt marka þegar Grosswallstadt tapaði leiknum 26-28 eftir að hafa verið með frumkvæðið nær allan leikinn og 14-11 forystu í hálfleik. Neuhausen vann síðustu sex mínútur leiksins 4-1 og tryggði sér dýrmætan sigur. Neuhausen er það með með tveggja stiga forskot á Grosswallstadt en bæði lið eru í fallsæti. Neuhausen er tveimur stigum á eftir VfL Gummersbach sem situr í síðasta örugga sætinu. Sverre var aðeins búinn að skora eitt mark í fyrstu 28 deildarleikjum Grosswallstadt á tímabilinu enda spilar hann bara vörnina og fær venjulega ekki að fara fram í hraðaupphlaupunum. Sverre skoraði markið sitt á 10. mínútu þegar hann jafnaði metin í 4-4 en Rúnar Kárason átti að sjálfsögðu stoðsendinguna á landa sinn. Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Rhein-Neckar Löwen unnu sannfærandi átta marka heimasigur á TUSEM Essen, 29-21. Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði þrjú mörk fyrir Löwen-liðið og Alexander Petersson var með eitt mark. Þýski landsliðsmaðurinn Patrick Groetzki var markahæstur hjá Löwen með átta mörk. Rhein-Neckar Löwen minnkaði forskot Kiel á toppnum í þrjú stig en lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel eiga leiki inni á Ljónin.
Mest lesið Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Enski boltinn Leitar að áhugamanni til að vinna Littler Sport Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Varamaður Ómars hetja Magdeburgar Skoraði fimmtán mörk Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistaradeildinni Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Sjá meira