Helena og félagar komust í undanúrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2013 17:18 Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir og félagar hennar í slóvakíska liðinu Good Angels Kosice halda áfram að skrifa sögu félagsins því í dag tryggði liðið sér sæti í undanúrslitum Euroleague en úrslitakeppnina fer fram þessa dagana í Rússlandi. Good Angels Kosice vann tólf stiga sigur á pólska liðinu Polkowice, 66-54, í lokaleiknum í sínum riðli og tryggði sér með því annað sætið í riðlinum. Heimamenn í UMMC Ekaterinburg unnu alla leiki sína stórt og unnu riðilinn sannfærandi en Good Angels Kosice hafði í betur í baráttunni við Polkowice sem hafði einnig unnið leik sinn á móti Galatasaray. Good Angels Kosice tók frumkvæðið í öðrum leikhluta sem liðið vann 19-8 en það skilaði Englunum tíu stiga forskoti í hálfleik, 33-23. Good Angels Kosice vann þriðja leikhlutann 14-11 og var því með þrettán stiga forskot fyrir lokaleikhlutann. Helena fékk að spila í tæpar níu mínútur í þessum leik og tókst ekki að skora en hún var með 2 stolna bolta, 1 frákast og 1 varið skot. Bandaríski framherjinn Plenette Pierson átti frábæran leik í liði Englanna en hún var með 22 stig, 8 fráköst, 3 stoðsendingar og 3 stolna bolta. Good Angels Kosice mætir tyrkneska liðinu Fenerbahce í undanúrslitunum sem fara fram á föstudaginn. UMMC Ekaterinburg mætir Bourges Basket frá Frakklandi í hinum leiknum en úrslitaleikurinn er síðan á sunnudaginn.
Körfubolti Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Fleiri fréttir Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Sjá meira