Útiloka ekki samstarf með Sjálfstæðisflokknum Ingveldur Geirsdóttir skrifar 24. febrúar 2013 12:10
Vinstri grænir útiloka ekki samstarf með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn. Tillaga ungliðahreyfingar flokksins um að ekki komi til greina að starfa með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn var felld á landsfundi flokksins. Á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í dag er afgreiðsla stjórnmálaályktana mál málanna eftir hópastarf í gær. Tillaga Ungra vinstri grænna um ályktunina Allt er betra en íhaldið, var felld nú í morgun. Vildu þeir að landsfundurinn lýsti því yfir að ekki komi til greina að starfa með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn. Samþykkt var að breyta heiti tillögunnar í Félagshyggja til framtíðar og með henni samþykkir flokkurinn að stefna ótrauður þátttöku áfram í félagshyggjuríkisstjórn. Nú er verið að ræða tillögur að ályktunum um umhverfismál á síðasta degi landsfundarins sem fer fram á Nordica hóteli. Í þeim tillögum kemur meðal annars fram að landsfundurinn leggist harðlega gegn öllum áformum um olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Vinnsla olíu sé stórt skref aftur á bak í baráttunni gegn auknum gróðurhúsaáhrifum og stangist á við yfirlýst markmið stjórnvalda að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fleiri fréttir Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Sjá meira