Kaffikeppni í Hörpu Íris Hauksdóttir skrifar 12. febrúar 2013 11:05
Nú geta kaffiunnendur heldur betur glaðst því um helgina mun Kaffibarþjónafélag Íslands blása til mikillar hátíðar í Hörpunni. Þar munu sérfræðingar í sælkerakaffi bera saman bækur sínar og styrkja tengslin sín á milli. Kaffifyrirtæki verða jafnframt með kynningarbása, en auk þess verða haldin tvö Íslandsmót: Íslandsmót kaffibarþjóna og Íslandsmótið „Kaffi í góðum vínanda". Sigurvegarnir öðlast síðan þátttökurétt á heimsmeistaramótum sem haldin verða í Nice í Frakklandi og Melbourne í Ástralíu.Björguðu Irish Coffee frá glötun Þetta er í þrettánda sinn sem Íslandsmót kaffibarþjóna er haldið og hefur Íslendingur keppt á Heimsmeistaramóti kaffibarþjóna frá upphafi. Íslandsmótið í kaffi í góðum vínanda er örlítið yngra, en Ísland sendi sinn fyrsta fulltrúa á það mót 2005. ,,Keppnirnar snúast fyrst og fremst um að finna eiginleika í fari kaffibarþjóns sem eru hvað eftirsóknarverðastir svo sem fagmennsku, samræmi í vinnubrögðum og skapandi framsetningu hvað varðar bragð kaffis með öðru hráefni. Íslandsmót kaffibarþjóna leggur áherslu á bragð hefðbundnari drykkja - espresso og cappuccino - auk þess sem keppendur þurfa einnig að skila af sér óáfengum kaffikokteil eftir eigin uppskrift. Íslandsmót í kaffi í góðum vínanda helgar sig áfengum kokteilum og var kveikjan að keppninni í stuttu máli þörfin til að bjarga Irish Coffee frá glötun." segir Þuríður Sverrisdóttir viðburðarstýra innan Kaffibarþjónafélagsins.Enginn fer þyrstur heim Eftir að hver keppandi lýkur keppni mun hann bjóða gestum og gangandi að bragða kaffið sitt og jafnframt tryggja það að enginn á svæðinu verði nú kaffiþyrstur. Einnig verða hin ýmsu fyrirtæki sem tengjast einhverjum hætti kaffihúsarekstri með sýningarbása og verða með eitthvað gott á boðstólum. „Við erum fimm í stjórn Kaffibarþjónafélagsins og höfum við verið að undirbúa Kaffihátíðina síðustu mánuði. Hátíðin er í raun uppskeruhátíð kaffibarþjóna og brennslumeistara þar sem skapast dýrmætt tækifæri að læra hvert af öðru." Og talandi um lærdóm, á sunnudeginum eftir herlegheitin verður haldin á Kaffismiðju Íslands löggilding kaffibarþjóna í fyrsta skipti á Íslandi á vegum Evrópusamtaka um sælkerakaffi (SCAE). Svo eftir hátíðina er engin tími til að fagna fyrir þá sem ætla að þreyta prófið, nema þá með lestri og öðrum kaffitengdum æfingum. Þuríður segir góða styrktaraðilla lykillinn að keppninni. „Við reiðum okkur alfarið á góðvild fyrirtækja til að halda keppnirnar og jafnframt senda keppendur út á heimsmeistaramótin. Í ár erum við að senda keppanda hinum megin á hnöttinn, alla leið til Melbourne og fyrirtæki á borð við Innnes, Kaffitár, Kaffismiðju Íslands, Mekka, Ekruna, Ásbjörn Ólafsson, Nóa Siríus og Litla Bóndabæinn svo einhver fyrirtæki séu nefnd, eru bæði að gera kaffihátíðina að veruleika og gera okkur kleift að senda Íslandsmeistarana erlendis að keppa fyrir Íslands hönd."
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira