Innlent

Steingrímur boðar til blaðamannafundar

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs og atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar í Norræna Húsinu klukkan fjögur í dag.

Aðstoðarmenn ráðherrans vilja ekki gefa upp hvert erindið er. Staðurinn er táknrænn fyrir þær sakir að fyrsti blaðamannafundur núverandi ríkisstjórnar var einmitt í Norræna Húsinu í tíunda maí árið 2009.

Var sá staður valinn meðal annars af þeirri ástæðu að ríkisstjórnin vildi leggja áherslu á velferðarmál að norrænni fyrirmynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×