Selja eldsneyti til Hollands 1. febrúar 2013 17:32 Vistvænt metanól til sölu í fyrsta sinn á bensínstöð N1 í Fossvogi, Carbon Recycling International, Rúnar Kárason undirbýr dælingu. Mynd / Vilhelm
Fyrsti farmur af endurnýjanlegu eldsneyti frá verksmiðju íslenska nýsköpunarfyrirtækisins Carbon Recycling International (CRI) hefur verið afhentur hollenska olíufyrirtækinu Argos í Rotterdam. þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu Carbon Recycling International (CRI) en fyrirtækið er það fyrsta á Íslandi sem hefur útflutning á endurnýjanlegu eldsneyti. Eldsneytinu, metanóli af endurnýjanlegum uppruna sem framleitt er úr vatni, raforku og koltvísýringi, verður blandað í bensín fyrir almennan markað í Hollandi. Argos er eitt af leiðandi olíufyrirtækjum í Norður-Evrópu. CRI gerir ráð fyrir að flytja út til Hollands alla framleiðslu sem ekki fer til innanlandsnota á þessu ári. Í Evrópusambandslöndunum er skylt að skipta út hluta af bensíni og dísil með eldsneyti af endurnýjanlegum uppruna en lög um slík orkuskipti hafa enn ekki verið sett hér á landi. Þess ætti ekki að vera langt að bíða þar sem Íslendingar eru skuldbundnir samkvæmt EES samningnum að setja slíkar reglur. Um áramótin gengu í gildi ný lög í Hollandi sem heimila olíufyrirtækjum að mæta kvöð um íblöndun endurnýjanlegs eldsneytis með eldsneyti sem framleitt er með raforku af endurnýjanlegum uppruna og koltvísýringi. CRI er eina fyrirtækið í heiminum sem rekur verksmiðju sem framleiðir fljótandi bílaeldsneyti úr orku sem er ekki af lífrænum uppruna. Aðferðin var þróuð á rannsóknarstofu CRI í Reykjavík. Framleiðsla fer nú fram í nýrri verksmiðju CRI við Svartsengi á Reykjanesi. Koltvísýringur til framleiðslunnar er fangaður úr útblæstri orkuvers HS Orku í Svartsengi. Þýska stofnunin ISCC hefur innleitt kerfi til þess að mæla kolefnisjöfnuð í framleiðsluferli CRI. Á grundvelli ISCC Plus kerfisins sem sniðið var að ferli CRI hefur verksmiðjan í Svartsengi nú hlotið vottun af SGS sem er stærsti vottunaraðili í heiminum, með höfuðstöðvar í Genf. Sýna niðurstöður vottunarinnar að endurnýjanlegt metanól dregur margfalt meira úr losun koltvísýrings en allt lífeldsneyti, þ.e. etanól og lífdísill, sem framleitt er úr hveiti, korni, sykurreyr eða jurtaolíu. Um 20 milljón tonn (25 milljarðar lítra) af metanóli eru notuð í eldsneyti í heiminum á hverju ári en aðeins brot af þessu magni er enn af endurnýjanlegum uppruna. Markaður fyrir endurnýjanlegt eldsneyti í Evrópu er nú um 5% af heildarorkuþörf bílaflotans en gert er ráð fyrir að hann muni tvöfaldast fyrir lok þessa áratugar. Markaður fyrir vistvænt eldsneyti sem er ekki af lífrænum uppruna eða úr sorpi mun vaxa hraðast á næstu árum. Búist er við að tilskipun sem takmarkar notkun lífeldsneytis sem unnið er úr jurtaafurðum sem ætlaðar eru til manneldis eða í dýrafóður taki gildi í Evrópusambandinu seinna á þessu ári. Argos er stærsta sjálfstæða fyrirtækið í olíudreifingu í Norður Evrópu og dreifir í hverri viku nærri jafn miklu magni af eldsneyti og notað er á bíla hér á landi á hverju ári. Það er leiðandi í dreifingu bílaeldsneytis í Hollandi og rekur einnig dreifingar- og sölukerfi í Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi og Sviss. Fyrirtækið hefur einnig verið brautryðjandi í blöndun endurnýjanlegs eldsneytis við jarðefnaeldsneyti. CRI hóf rannsóknir og þróun á framleiðslu endurnýjanlegs eldsneytis árið 2006. Eldsneytisverksmiðjan í Svartsengi var opnuð formlega vorið 2012. CRI hefur unnið að prófunum á blöndu metanóls og bensíns í samstarfi við innlend olíufélög, auk þess sem endurnýjanlegt metanól er notað til framleiðslu á lífdísil hjá innlendum framleiðendum. Hjá CRI starfa nú á þriðja tug starfsmanna við rannsóknir, viðskiptaþróun og framleiðslu.
Mest lesið „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Sjá meira