Guðjón Valur: Þeir voru einfaldlega betri Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. janúar 2013 21:19 Mynd/Vilhelm
Guðjón Valur Sigurðsson segir að framundan sé ekkert nema bikarúrslitaleikir fyrir íslenska landsliðið á HM í handbolta. Ísland tapaði fyrir Danmörku í Sevilla í kvöld með átta marka mun. „Það er þó ólíkt að tapa fyrir Rússlandi, þegar við vorum mjög lélegar, og í dag þegar við vorum að spila við frábært lið," sagði Guðjón Valur við Arnar Björnsson eftir leikinn í kvöld. „Við áttum í stórkostlegum vandræðum gegn þeim. Við náðum varla að klukka þá og þeir fengu allt of mikið af fríum skotum." „Það er auðvitað hundfúlt að tapa. En nú erum við í þeirri stöðu að ef við vinnum Katar tekur við bikarkeppni hjá okkur. Við þurfum því að grafa þennan leik eins djúpt og við getum og gleyma honum." Ísland þarf að stóla á danskan sigur gegn Makedóníu á föstudag til að forðast það að mæta Frökkum í 16-liða úrslitum keppninnar. „Nú förum við upp á hótel og reynum að græja það að Danirnir taki á þeim. En að öllu gríni slepptu þá er stórhættulegt að slaka á í svona mótum. Það þarf að halda dampi og við vonum að þeir geri það." Guðjón Valur segir að íslensku leikmennirnir hafi verið teknir í kennslustund í upphafi síðari hálfleiks í dag. „Þeir keyrðu í bakið á okkur og skoruðu grimmt, án þess að við náðum að skipta inn á varnarmönnunum okkar. Þeir voru líka oft að skora af löngum færum." „Það þarf að horfast í augu við raunveruleikann og segja að Danir voru einfaldlega betri í dag. Danir eru Evrópumeistarar en ég vil samt meina að við getum unnið þetta lið á góðum degi." „En til þess þurfa fleiri leikmenn að hitta á góðan dag sem gerðist því miður ekki. Við fengum rassskellingu í dag og heilmikið sem hægt er að læra af því." „Nú þurfum við að taka það jákvæða með okkur úr þessum leik, taka Katar og gera svo allt vitlaust í bikarkeppninni."
Mest lesið Leik lokið: Tindastóll - Stjarnan 77-82 | Stjarnan er Íslandsmeistari Körfubolti „Þakka Guði fyrir að leyfa mér að upplifa þetta“ Körfubolti „Körfuboltaguðirnir voru búnir að ákveða“ Körfubolti Amorim vildi ekki ræða framtíðina Fótbolti Ægir valinn verðmætastur Körfubolti Tottenham vann Evrópudeildina Fótbolti „Okkur er alveg sama núna“ Fótbolti Sjáðu markið sem tryggði Tottenham titilinn Fótbolti Shaq segist hundrað prósent Körfubolti Sveindís til félags í eigu stórstjarna Fótbolti Fleiri fréttir Kolstad kláraði úrslitaeinvígið Baldur mátaði sig við þá bestu og setur stefnuna á toppinn Uppgjörið: Valur - Haukar 30-28 (1-0) | Engin þynnka í Evrópumeisturunum „Að besta dómarapar Íslands sitji upp í stúku finnst mér ansi skrýtið“ „Það er kúnst að leggja þetta til hliðar og byrja að fókusa“ Samgleðst vinkonum í Val sem eru vonandi þunnar „Ótrúlegt að við höfum unnið þennan leik“ Ómar Ingi hélt upp á framlengingu á samningi með stórleik Uppgjörið: Fram - Valur 27-26 | Fram einum sigri frá Íslandsmeistaratitlinum Framarar fengu drjúgan tíma til að sóla sig um helgina Dagur bikarmeistari eftir maraþon vítakeppni Sigur hjá Kolstad í fyrsta leik úrslitanna Óðinn markahæstur í fyrsta leik úrslitaeinvígisins Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Táraðist vegna ólýsanlegrar gleði „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Arnór stýrði sínum mönnum í undanúrslit „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Sjá meira