Öll hin liðin á HM skoruðu meira en Ísland hægra megin fyrir utan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2013 11:15 Íslenska handboltalandsliðið. Mynd/HSÍ/Hilmar Þór Guðmundsson
Íslenska handboltalandsliðið endaði í 12. sæti á HM í handbolta á Spáni eftir að hafa dottið út úr sextán liða úrslitunum á móti heims- og Ólympíumeisturum Frakka. Mönnum hefur verið tíðrætt um veikleika íslenska liðsins í keppninni sem var öðru fremur skyttustaðan hægra megin. Íslenska liðið missti heimsklassamennina Ólaf Stefánsson og Alexander Petersson sem hafa báðir verið valdir í úrvalslið stórmóta í þessari stöðu. Tölfræði mótshaldara sýnir að skarðið sem þeir skildu eftir sig var alltof stórt því öll hin 23 liðin í keppninni skoruðu fleiri mörk hægra megin fyrir utan en íslenska liðið. Þar á meðal er lið Ástrala sem endaði í neðsta sæti á fimmta heimsmeistaramótinu í röð en Ástralir skoruðu átta mörk úr skyttustöðunni hægra megin eða einu marki meira en íslenska liðið. Brasilíumenn skoruðu flest mörk úr þessari stöðu eða alls 26. Íslenska liðið nýtti 7 af 20 skotum sínum hægra megin fyrir utan í sínum sex leikjum sem gerir 35 prósent skotnýtingu úr þessari stöðu á vellinum. Fjögur lið voru með lakari nýtingu úr þessari stöðu í fyrstu sex leikjum sínum en Ástralir nýttu aðeins 16 prósent skota sinna þaðan. Íslenska liðið skoraði alls 44 mörk með langskotum og er þar í þrettánda sæti meðal liðanna 24 á mótinu. Tólf mörk komu vinstra megin fyrir utan og 25 mörk komu frá miðjunni. Ísland fékk aðeins tvö mörk úr þessari stöðu gegn Rússlandi, Makedóníu og Danmörku en fjögur komu í leiknum gegn Frökkum í 16-liða úrslitunum. Mörk skoruð hægra megin fyrir utan á HM í handbolta(Tölfræðin er frá riðlakeppninni og 16 liða úrslitunum) Brasilía 26 mörk (53 skot - 49,1 prósent nýting) Katar 19 mörk (41 - 46,3%) Túnis 18 mörk (40 - 45,0%) Slóvenía 16 mörk (27 - 59,3%) Sádí-Arabía 16 mörk (44 - 36,4%) Þýskaland 16 mörk (38 - 42,1%) Argentína 15 mörk (32 - 46,9%) Serbía 15 mörk (34 - 44,1%) Ungverjaland 15 mörk (28 - 53,6%) Hvíta-Rússland 14 mörk (30 - 46,7%) Síle 13 mörk (33 - 39,4%) Suður-Kórea 13 mörk (34 - 38,2%) Frakkland 12 mörk (27 - 44,4%) Svartfjallaland 12 mörk (28 - 42,9%) Makedónía 12 mörk (32 - 37,5%) Danmörk 11 mörk (21 - 52,4%) Pólland 11 mörk (26 - 42,3%) Alsír 10 mörk (31 - 32,3%) Spánn 9 mörk (32 - 28,1%) Rússland 8 mörk (19 - 42,1%) Ástralía 8 mörk (51 - 15,7%) Egyptaland 8 mörk (31 - 25,8%) Krótatía 8 mörk (19 - 42,1%)Ísland 7 mörk (20 - 35,0%)
Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira